Sveinn Sveinsson
Fararstjóri
Fararstjóri:
Sveinn Sveinsson er fæddur árið 1944 í Reykjavík og er menntaður framreiðslumeistari. Sveinn hefur mikla og víðtæka reynslu af veislu- og viðburðarekstri og var meðal annars veitingastjóri og síðar verktaki á Hótel Sögu í 35 ár. Í framhaldi réði hann sig sem veitingastjóri Bláa Lónsins í 10 ár og rekstrastjóri Sjávarkjallarans.
Sveinn byrjaði að iðka golf árið 1970 hjá Nesklúbbnum en hefur verið meðlimur í Golfklúbbi Reykjavíkur frá 1985. Hann var í stjórn Landssamtaka eldri kylfinga, L.E.K. og hefur verið fararstjóri í keppnisferðum þeirra frá árinu 2008. Sveinn hefur stundað golfferðir til Skotlands, Englands, Florida, Portúgals og Spánar í 25 ár og hefur því viðamikla reynslu. Ásamt golfinu hefur skíðamennska og fótbolti spilað stórt hlutverk hjá Sveini sem var í stjórn K.S.Í. í 14 ár þar sem hann vann öflugt starf með ungmennalandsliðum drengja og var meðal annars fararstjóri í allmörgum keppnisferðum þeirra erlendis. Sveinn var einnig F.I.F.A. alþjóðadómari og í stjórn Knattspyrnufélagsins Fram. Sveinn hefur stundað skíðaferðir m.a. til Ítalíu og Austurríkis undanfarin 30 ár.