fbpx Gran Canaria tilboð | Vita

Gran Canaria tilboð

Eyjan fjölbreytta

LÚXUS - Lopesan Baobab ★★★★★ Maspalomas

01. mars, 7 nætur.

298.000

Á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli með garðsýn og morgunverði á Lopesan Baobab
Lækkaðu verð ferðarinnar með Vildarpunktum.
Sjá nánar um Punkta og peninga hér 

Green Golf ★★★ Maspalomas

12. mars, 10 nætur.

189.900

Á mann m.v. 2 fullorðna í smáhýsi "Plus" með 1 svefnherbergi án fæðis á Green Golf
Lækkaðu verð ferðarinnar með Vildarpunktum.
Sjá nánar um Punkta og peninga hér 

Green Golf ★★★ Maspalomas

15. mars, 8 nætur.

169.900

Á mann m.v. 2 fullorðna í smáhýsi "Plus" með 1 svefnherbergi án fæðis á Green Golf
Lækkaðu verð ferðarinnar með Vildarpunktum.
Sjá nánar um Punkta og peninga hér 

Myndagallerí

Sól og veðursæld einkennir Gran Canaria

Verðdæmi eru í bókunarkössunum hér til hliðar. 

Gran Canaria er partur af Kanaríeyjum og er þriðja stærsta eyjan í klasanum. Á Gran Canaria er sól og veðursæld allt árið um kring, hlýr sjór og frábær strandlengja. Þá má nefna gott úrval fjölbreyttra veitingastaða og fjölda verslana um alla eyjuna.


kanari_maspalomas_almennt_1.jpg

Í höfuðborginni, Las Palmas, er allt til alls og hún stendur við fallega strandlengju og hafnarsvæði með góðri göngugötu. Þar er einnig að finna söfn og tónlistarhús. Matarstemmingin í Las Palmas er öll flóran, allt frá skyndibitastöðum, góðum tapasbörum upp í dýrindis veitingastaði. Frá Parque Santa Catalina torgi er hægt að fara í rómantíska hestvagnaferð um borgina. Einnig er yndislegt að borða við smábátahöfnina Muelle deportivo þar sem fallegt útsýni er yfir hafnarsvæðið í Las Palmas. Að lokum er frábært að hella sér út í kvöld og næturlífið og taka smá „Salsa eða Latinó“ stuð.  


kanari_almennt_istock_1.jpg

Á suðurhluta eyjunnar eru flestir ferðamannastaðirnir eins og Playa del Ingels, Maspalomas, Meloneras, Purto Rico og Playa de Mogán.  

Playa del Ingles, sem er á suðurhluta eyjunnar, er stærsti og lang vinsælasti dvalarstaður ferðamanna á Gran Canaria. Þetta svæði býður upp á fjölbreytta þjónustu og afþreyingu. Vatnasport, göngu- og hjólaleiðir, klifur, köfun, skoðunarferðir og skemmtigarðar. Þetta og margt fleira er hægt að finna á svæðinu.

Englendingar voru fjölmennustu ferðamennirnir á þessum slóðum eftir að svæðið var byggt upp sem ferðamannastaður upp úr 1950 og dregur ströndin því heiti sitt af því. Enska ströndin, sem teygir sig sjö kílómetra frá San Agustin í austri til Maspalomas í vestri, státar m.a. af hvers kyns vatnasporti, íþróttaaðstöðu og góðum golfvöllum sem og verslunarmiðstöðvunum Yumbo, Cita og Kasbah, aragrúa kaffihúsa, fjölbreyttri veitingahúsaflóru, börum, næturklúbbum, diskótekum og skemmtistöðum fyrir fólk á öllum aldri.


kanari_playa_del_ingles_almennt1.jpg

Einnig er gaman er að heimsækja róleg fjallaþorp í nágrenninu á milli þess sem menn slaka á, sleikja sól og stunda vatnasport eða aðra góða hreyfingu. Þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

Fjölmargar frábærar gönguleiðir

Eyjan þykir ákjósanlegur áfangastaður fyrir göngugarpa, enda er ekki amalegt að fara gangandi um náttúru sem ber merki mikillar eldvirkni. Eyjan þykir spennandi fyrir hjólreiðafólk auk þess sem hægt er að fara í skipulagðar hesta-, jeppa- og úlfaldaferðir. Golf á sér að sama skapi langa sögu á Gran Canaria og er þar að finna góða golfvelli sem forfallnir golfarar ættu alls ekki að láta fram hjá sér fara.


kanari_racer_2.jpg

Kanaríeyjar búa yfir töfrandi sjarma með sínar hvítu og svörtu strendur, ylvolga sjó og fjölbreytt mannlíf. Hér er allt til alls og því allar forsendur til staðar fyrir fullkomið frí!

Skemmtigarðar og önnur afþreying

Skemmti- og fjölskyldustaðurinn HOLIDAY WORLD

Tívolí í Maspalomas. Þar er ýmis afþreying í boði fyrir unga sem aldna og af nógu að taka. Þar má nefna m.a: Rússibana, fallturn, parísarhjól, leiktækjasali, góðan keilusal, bari og veitingastaði. Athugið að tívolíið opnar kl. 18:00. Strætisvagnar ganga reglulega til Holiday World.


holiday_world-gran_canaria_nota.jpg

PALMITOS PARK

Vinsæll dýragarður þar sem hægt að skoða apa, fugla, og fiðrildi svo eitthvað sé nefnt. Fuglasýningar eru haldnar reglulega yfir daginn. Vinsamlega kynnið ykkur tímasetningar á sýningunum þegar komið er í garðinn. Til að komast í Palmitos Park þá er hægt er að taka strætisvagn númer 45/451 frá Ensku ströndinni og númer 70/701 frá Puerto Rico og Meloneras. Opnunartími er alla daga frá kl. 10:00 til 18:00.

SIOUX CITY  

Gamall tökustaður fyrir kúrekamyndir er  staðsettur aðeins fyrir utan San Agustin (Enska ströndin). Þessi skemmtilegi garður býður upp á fjölbreyttar sýningar og er opinn alla daga nema mánudaga frá kl. 10:00 til 17:00. Á föstudagskvöldum er grillveisla kl. 20:00. Eftir matinn eða um kl. 22:00 hefst síðan  sýning. Þeir sem hafa áhuga þurfa að panta fyrirfram. Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá fararstjórum á viðtalstímum. Þeir sem vilja fara í garðinn á eigin vegum geta tekið strætisvagn númer 29.

AQUALAND

Skemmtilegur vatnsrennibrautargarður ofan við Maspalomas. Í garðinum eru  fjölbreyttar sundlaugar og rennibrautir af öllum stærðum og gerðum auk þess sem þar eru sólbekki til afnota. Einnig er hægt að spila minigolf í garðinum. Hægt er að leigja læsanlega skápa meðan á dvöl stendur. Ef veður leyfir þá er opið alla daga frá kl. 10:00 til 17:00. Strætisvagn númer 45/451 gengur frá ensku ströndinni og vagnar númer 70/701 frá Puerto Rico og Meloneras.


kanari_agualand.jpg

COCODRILO PARK

Krókódílagarðurinn er skemmtilegur dýragarður, staðsettur nálægt Arinaga. Þar er hægt að skoða krókódíla, fugla, bengal tígrisdýr, apa og fleiri dýr. Fuglasýningar eru haldnar nokkrum sinnum yfir daginn. Opnunartími er frá sunnudegi til föstudags frá kl. 10:00 til 18:00.

MUNDO ABORGIEN

Frumbyggjasafnið er staðsett í um 6 km fjarlægð frá Ensku ströndinni í átt að Fataga. Á þessu safni er að finna styttur af frumbyggjum og eftirlíkingar af  byggð þeirra. Safnið er opið frá kl. 09:00 til 18:00 og eru útskýringar á ensku. Til að komast í safnið þá er hægt er að taka strætisvagn númer 18.

GO-KART

Go-Kart brautir eru bæði fyrir utan San Agustin og Maspalomas. Skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna.

HANGAR 37

Þetta er fyrsti garðurinn í Evrópu sem sérhæfir sig í svokölluðum ,,Airsoft" leikjum. Leiktækin svipa til ,,Paintball" þar sem lið keppa og völlurinn er með ýmiss konar felustaði og hindranir. Hann er skreyttur með flugvélapörtum, trukkum og ýmiss konar búnaði sem minnir á hernumin svæði. 
Byssurnar eru skyldar loftbyssum og garðurinn á að vera fyrir flestalla aldurshópa.


kanari_hangar37.jpg

ANGRY BIRDS GARÐUR

Þessi garður er með úrval leiktækja fyrir börn á öllum aldri. Klifurgrindur, kassabílar/hjólabílar, risa trampólín, litlir fótboltavellir, ,,ziplines" og möguleiki á að prófa rafdrifnar vespur. Einnig er ágætis veitingaaðstaða og krikket aðstaða svipað og mini golf. 

GULI KAFBÁTURINN

Liggur við höfnina í Puerto de Mogán. Það er bæði ánægjulegt og fræðandi  að fara þangað og komast í kynni við hið margbrotna dýralíf neðansjávar. Kafbátafyrirtækið býður uppá ókeypis rútuferðir nokkrum sinnum á dag frá San Agustin, Ensku ströndinni, Maspalomas og Meloneras. Nánari upplýsingar um stað og stund er hægt að fá hjá gestamóttöku hótelsins eða í viðtalstímum hjá fararstjórum. Einnig er hægt að taka strætisvagn númer 1 sem gengur til Puerto de Mogán.

KÖFUN

Köfun er í boði fyrir byrjendur sem og lengra komna. Padi köfunarskólinn býður upp á að sækja viðkomandi á hótelið, köfunarkennslu, allan útbúnað og tryggingar. Í lok dags er fólki síðan ekið aftur upp á hótel. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá gestamóttöku hótelsins eða í viðtalstímum fararstjóra.

KAYAK, BRIM-OG SELGBRETTI

Fyrir þá sem hafa áhuga á sjósporti. Opið er frá kl. 09:30 til 17:00 en athugið að opnunartíminn getur verið breytilegur og fer það eftir veðri og aðstæðum. Kennsla fyrir byrjendur er á mánudögum og fimmtudögum kl. 12:00. Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá gestamóttöku hótelsins eða á viðtalstímum fararstjóra.

ÚLFALDAREIÐ

Camello safari á sandöldum Maspalomas er skemmtileg upplifun. Sérstök sæti eru útbúin á hverjum úlfalda og sitja þar tveir farþegar hverju sinni. Opið er frá kl. 09:00 – 16:30 en nánari upplýsingar er hægt að fá hjá gestamóttöku hótelsins eða á viðtalstímum fararstjóra.

FALLHLÍFARSTÖKK

Spennandi kostur fyrir þá sem vilja fá adrenalínið til að flæða um líkamann. Kennsla fer fram á jörðu niðri og að henni lokinni er farið af stað. Hægt er að stökkva alla daga en að sjálfsögðu fer það eftir veðri og vindum. Frekari upplýsingar er hægt að fá í gestamóttöku hótelsins eða hjá fararstjórum.

SJÓSTANGVEIÐI

Öðru nafni (White Marlin) er í boði frá Puerto Rico. Farið er með reyndum fiskimönnum á 12 metra löngum Cata 356 báti. Veiðitíminn er frá kl. 09:00 – 15:00 eða 15:00 – 20:00. Innifalið eru ferðir til og frá hóteli, leiga á veiðarfærum, beita og léttar veitingar. Nánari upplýsingar er hægt að fá í gestamóttöku hótelsins eða í viðtalstímum fararstjóra.


kanari_sport_fishing.jpg

GARBO´S

Skemmtistaður sem býður uppá dans og skemmtisýningu ásamt þriggja rétta kvöldverði. Í þessari skemmtilegu sýningu eru þjónarnir í aðalhlutverki allan tímann og sjá um að syngja, dansa og skemmta sýningargestum auk þess sem þeir þjóna til borðs. Nánari upplýsingar og pantanir eru í viðtalstímum fararstjóra.

Golf

Gran Canaria er draumastaður golfarans. Hér eru margir góðir vellir og eru nokkrir þeirra staðsettir nálægt okkar gististöðum. Hér að neðan er listi yfir nokkra golfvelli. Athugið að yfirleitt þarf að panta rástíma fyrirfram.


kanari_maspalomas_golf_istock.jpg

Golfvellir sem eru í nágrenni Ensku strandarinnar:

Campo de Golf Maspalomas

Þetta er 18 holu golfvöllur í Maspalomas hverfinu. Völlurinn er par 73 og hægt er að leigja allan búnað sem og kennara á staðnum. Einnig er verslun, veitingastaður og snakk barir á svæðinu.

Meloneras Golf

Nýjasti golfvöllurinn sem var hann opnaður vorið 2006. Þessi 18 holu völlur er staðsettur meðfram sjónum í Meloneras hverfinu og er hann par 71. Hægt er að leigja allan útbúnað og að auki er golfskóli á svæðinu.

Salobre South - Salobre North

Þetta eru tveir 18 holu vellir sem hvor um sig eru par 7. Þeir eru staðsettir í fallegu umhverfi á milli Arguineguin og Maspalomas. Á svæðinu er golfskóli, kylfuleiga, verslun, veitingastaður o.fl.

Anfi Tauro Golf er 9 og 18 holu golfvöllur sem staðsettur er í fallegu umhverfi rétt fyrir utan Puerto Rico (nálægt Playa de Cura). Golfskóli er á staðnum og hægt er að leigja allan útbúnað.

Golfvellir í nágrenni Las Palmas:

Real Club del Golf Las Palmas

Elsti golfvöllur Spánar. Þessi 18 holu völlur er par 71 og er í u.þ.b. 15 mínútna akstursfjarlægð frá Las Palmas. Á svæðinu er golfskóli, kylfuleiga, æfingavöllur, púttvellir og veitingastaður svo eitthvað sé nefnt.

Oasis Golf

Oasis Golf er skemmtilegur par 3, pitch & put völlur í u.þ.b. 10. mínútna akstursfjarlægð frá Las Palmas. Golfvöllurinn er lítill 18 holu, par 54 og er hann sá eini á eyjunni sem er flóðlýstur á kvöldin. Kylfuleiga er á staðnum ásamt verslun og veitingastað.

El Cortijo Club de Campo

Þessi völlur er 18 holu golfvöllur, par 72 í fallegu umhverfi og hafa alþjóðleg golfmót verið haldin þar. Á vellinum er verslun, golfskóli, æfinga- og púttvöllur og hægt er að leigja allan útbúnað.

Betri ferð fyrir betra verð

LÚXUS - Lopesan Baobab ★★★★★ Maspalomas

01. mars, 7 nætur.

298.000

Á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli með garðsýn og morgunverði á Lopesan Baobab
Lækkaðu verð ferðarinnar með Vildarpunktum.
Sjá nánar um Punkta og peninga hér 

Green Golf ★★★ Maspalomas

12. mars, 10 nætur.

189.900

Á mann m.v. 2 fullorðna í smáhýsi "Plus" með 1 svefnherbergi án fæðis á Green Golf
Lækkaðu verð ferðarinnar með Vildarpunktum.
Sjá nánar um Punkta og peninga hér 

Green Golf ★★★ Maspalomas

15. mars, 8 nætur.

169.900

Á mann m.v. 2 fullorðna í smáhýsi "Plus" með 1 svefnherbergi án fæðis á Green Golf
Lækkaðu verð ferðarinnar með Vildarpunktum.
Sjá nánar um Punkta og peninga hér 

  • Veðrið

  • Flugtími

    Kef LPA

    5:30 klst

    Morgunflug

  • Gjaldmiðill

    Evra

    Gengi

Sjá Kortasýn Sjá gististaði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun