fbpx Abba Granada Hotel | Vita

Abba Granada Hotel
4 stars

Vefsíða hótels

Nútímalegt hótel á mjög góðum stað í miðborginni. Rétt við aðalverslunarhverfið, háskólann og stutt frá márahverfinu Albaicín.

Í hótelinu eru 136 vistarverur sem skiptast í tveggja manna herbergi og svítur sem rúma allt að þrjá fullorðna og fjölskylduherbergi sem rúma tvo fullorðna og tvö börn. Innréttingar eru stílhreinar og nútímalegar, dökkur viður, dempaðir litir og parkett á gólfum. Þægindi eins og loftkæling, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf og smábar eru í öllum herbergjum, einnig þráðlaus nettenging. Á baðherbergjum er sturta eða bað, hárþurrka og ókeypis baðvörur.

Morgunverðarhlaðborð er í veitingasal og á veitingastaðnum Abba Mía er leggur matreiðslumeistarinn áherslu á ítalska og alþjóðlega matargerð, úr ferskasta mögulega hráefni hverju sinni, og vínið er að sjálfsögðu sérvalið. Barinn í hótelinu er vel útbúinn og þar er tilvalið að fá sér fordrykk, nú eða einn fyrir svefninn, hvort sem það er koníak eða kamillute.

Líkamsræktaraðstaða er í hótelinu og þar er sána og þurrgufubað og nuddpottur. Lítil sundlaug er úti á veröndinni þar sem hægt er að slaka á og sleikja sólina, en ef hún lætur ekki sjá sig er í það minnsta hægt að næla sér í smá lit í sólbekkjunum.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er þvotta-, þurrhreinsi- og strauþjónusta, bílaleiga og töskugeymsla. Starfsfólk aðstoðar við miðakaup og veitir upplýsingar um helstu kennileiti og söfn.

Abba hótelið er í nútímalegri byggingu á besta stað í miðborginni, rétt hjá háskólanum. Stutt er í aðalverslunarhverfið og 10 mínútna gangur er í tapasbarina og iðandi mannlífið við Elvira-stræti. Dómkirkjan og márahverfið Albaicín eru í léttu göngufæri. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 19 km
  • Miðbær: 10 - 15 mínútur
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun