fbpx AC Palacio De Santa Paula, Autograph Collection | Vita

AC Palacio De Santa Paula, Autograph Collection
5 stars

Vefsíða hótels

Einstaklega fallegt lúxushótel í klausturbyggingu við Gran Via breiðstrætið í hjarta gamla bæjarins. Rétt við dómkirkjuna og gamla silkimarkaðinn með verslanir og veitingastaði allt um kring.

Í hótelinu eru 75 rúmgóð, glæsilega innréttuð herbergi, sem rúma einn til tvo einstaklinga, hægt er að fá aukarúm fyrir þann þriðja. Innréttingar eru fallegar og stílhreinar, í dökkum við og veggir í hlýjum litum. Parkett er á gólfum. Stillanleg loftkæling er í herbergjum, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, sími, smábar og þráðlaus nettenging. Á baðherbergjum er baðker eða sturta, hárþurrka, baðsloppur og inniskór auk baðvara af bestu gerð.

Veitingastaðurinn í hótelinu, El Claustro, er þar sem matsalurinn var í klaustrinu fyrr á öldum, þar er hátt til lofts og stemningin einstök. Morgunverðarhlaðborð er hlaðið ljúffengum heitum og köldum réttum og í hádeginu og á kvöldin er áherslan á andalúsíska matargerð með nútímaívafi. Veröndin snýr út í klausturgarðinn og því er einnig hægt að njóta matarins undir beru lofti þegar veður leyfir. Að auki er setustofubar í hótelinu með góðu úrvali áfengra og óáfengra drykkja.

Líkamsræktaraðstaða er í hótelinu auk gufubaðs og tyrknesks baðs og hægt er að panta nudd.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn, þar er boðið upp á þvotta-, þurrhreinsi- og strauþjónustu, gjaldeyrisskipti og aðstoð við miðakaup og skipulagningu á skoðunarferðum.

Hótelið AC Palacio de Santa Paula er að hluta í klausturbyggingu frá 16. öld og að hluta í byggingu frá því um 1900. Byggingin er friðuð vegna sögulegs og listræns gildis og hér hefur tekist einstaklega vel að sameina aldagamla byggingalist og nútíma glæsileika og þægindi. Klausturgarðurinn er fallegur og vel varðveittur. Staðsetningin er frábær, við breiðgötu í hjarta gamla bæjarins, rétt við dómkirkjuna og gamla silkimarkaðinn, auk þess sem stutt er í Alhambrahöllina, gamla márahverfið Albaicín og helstu söfn og kennileiti. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 19 km.
  • Miðbær: í miðbæ
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun