fbpx Adler hotel, Paganella | Vita

Adler hotel, Paganella
4 stars

Vefsíða hótels

Hótel Adler er nýlega uppgert hótel í miðbæ Andalo, 100 metra frá aðal skíðakláfnum. Gamalt og gott hótel sem hóf starfsemi sína árið 1956 en var tekið í gegn að utan sem innan árið 2011. Eins og á flestum skíðahótelum bíður Hótel Adler uppá fyrirtaks heilsulind með sauna, heitum potti, ljósabekk og tækjasal. Spa hótelsins er með viðarhúsgögnum.

Á fyrstu hæðinni er gestamóttaka, setustofa, veitingsalur og hótelbarinn. Þar er einnig leikherbergi fyrir börn. Veitingastaður hótelsins býður uppá fjölbreytta matargerð m.a. frá Trentino og klassíska ítalska rétti bæði í hádeginu og á kvöldin. Alla morgna er morgunverðarhlaðborð. Einu sinni í viku er svo lifandi tónlist og skemmtun á hótelinu.Tvær lyftur eru í húsinu og er skíðageymsla með skóhitara í kjallara.

Vita er með samning um „Relax“ herbergi sem taka tvo til þrjá. Inná öllum herbergjum er sjónvarp, sturta, hárþurrka, sími, öryggishólf, smábar og frítt þráðlaust net. Herbergin eru með viðargólfi.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 130 km
  • Skíðalyfta: 100 m
  • Miðbær: Í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Upphituð skíðageymsla
  • Veitingastaður
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum
  • Skemmtidagskrá: Einu sinni í viku er lifandi tónlist og skemmtun á hótelinu

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir
  • Ísskápur
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun