fbpx Altis Park Hotel

Altis Park Hotel
4 stars

Vefsíða hótels

Mjög gott hótel á góðum stað í miðborg Lissabon. Auðvelt er að komast til og frá flugvellinum með neðanjarðarlest sem stoppar stutt frá hótelinu og beint í iðandi mannlífið í miðbænum.

Í hótelinu eru 300 vistarverur sem skiptast í herbergi fyrir einn til þrjá einstaklinga og svítur sem rúma allt að fjóra. Innréttingar eru nútímalegar og hlýlegar og teppi er á gólfum. Nútímaþægindi eins og loftkæling er í öllum vistarverum, sími, útvarp, háskerpu flatskjársjónvarp með gervihnattarásum og smábar. Á baðherbergjum er sturta, hárþurrka og ókeypis baðvörur. Þráðlaus nettenging er á herbergjum og ókeypis í sameiginlegum rýmum. Útsýnið úr mörgum herbergjanna er einstaklega falleg, yfir Tagus-ána.

Morgunverðarhlaðborð með heitum og köldum réttum er í veitingasal. Útsýnið úr veitingastaðnum Navegadores er stórkostlegt, þar hanga nútímalistaverk á veggjum og maturinn er ljúffengur. Áhersla er á portúgalska og alþjóðlega rétti af hlaðborði og matseðli. Á Adamastor-barnum er ríkulegt úrval kokteila og annarra áfengra og óáfengra drykkja.
Gestir hafa aðgang að Olaias-heilsulindinni sem er í 100 metra fjarlægð frá hótelinu. Þar er úti- og innisundlaug, tennis- og skvassvellir, nuddpottar, gufubað og þurrgufa, líkamsræktaraðstaða og veitingastaður, auk þess sem boðið er upp á líkamsmeðferðir af öllum gerðum. Þar er einnig snyrti- og hárgreiðslustofa.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn er þar er gjafavöruverslun, hraðbanki, töskugeymsla og strauþjónusta. 

Altis Park  er á mjög góðum stað stutt frá miðbænum. Auðvelt er að komast að hótelinu frá flugvellinum með neðanjarðarlest sem stoppar stutt frá. Einnig er auðvelt að komast með almenningssamgöngum í söfn, kirkjur, verslunarhverfi og að öllum helstu kennileitum í þessari hæðóttu borg. Hún gæti annars reynst erfið yfirferðar á tveimur jafnfljótum. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 6 km
  • Miðbær: Í miðborginni
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Heilsulind: 100 m frá hótelinu.
  • Nettenging: Ókeypis í sameiginlegum rýmum.

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun