Aquasol, Palmanova
Vefsíða hótels
Aquasol er einfalt og fjölskylduvænt íbúðahótel á Palmanova ströndinni.
Á hótelinu eru 132 íbúðir, ýmist með einu, tveimur eða þremur svefnherbergjum sem rúma mest 8 einstaklinga. Íbúðirnar eru snyrtilegar og innréttaðar á látlausan hátt. Baðherbergin eru öll með "walk inn" sturtu. Ókeypis þráðlaus nettenging er á öllum svæðum hótelsins. Athugið að ekki er lyfta á hótelinu.
Á veitingastaðnum Citrus er hægt er að fá bæði morgun- og kvöldverð af hlaðborði. Hægt er að velja af sérstöku hlaðborði fyrir börnin. Tveir barir eru á hótelinu, inni er Aquasol barinn þar sem hægt er að svala sér á góðum kokteilum eða bara fá sér einn kaldan en á útisvæðinu er sundlaugarbarinn Fresco þar sem hægt er fá sér drykki og létt snarl. Krakkaklúbbur er á hótelinu með ýmsar skemmtanir fyrir 4-12 ára, s.s. vatnaleiki, ýmis konar barnasýningar og mini disco svo eitthvað sé nefnt.
Fjarlægðir
- Strönd: 500 metrar
- Flugvöllur: 30 mín
- Veitingastaðir: Allt um kring
Aðstaða
- Sundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Bar
- Barnadagskrá
- Barnaleiksvæði
- Barnasundlaug
- Gestamóttaka
- Íbúðir
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Ísskápur
- Verönd/svalir
- Íbúðir
Fæði
- Hálft fæði
- Morgunverður
- Án fæðis