fbpx Ariston Hotel, fjölskyldurekið í miðbæ Madonna

Ariston
3 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Ariston er notalegt þriggja stjörnu superior fjölskyldurekið hótel á frábærum stað við efra torgið í miðbæ Madonna. Það er örstutt í skíðalyftur, brekkur og búðir, og á hótelinu sjálfu er veitingastaður og heilsulind. Aðeins er um 50 metra (5-7 mín) gangur að næstu skíðalyftu, og stutt í verslanir.

Herbergin eru rúmgóð og búin öllum helstu þægindum; sjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólfi og svölum. Te og kaffivél er inná herbergjum. Ókeypis þráðlaus nettenging er á herbergjum og hótelinu. Á baðherbergjum er bæði baðkar og sturta. Hárþurrka er á öllum herbergjum.

Á hótelinu er líkamsrækt og heilsulind með sundlaug, nuddpotti, sánu og tyrknesku baði. Þar er tilvalið að slaka á eftir erfiðan dag í brekkunum.
Frítt er í sauna og sund. Nudd- og snyrtimeðferðir eru einnig í boði gegn gjaldi og hægt er að leiga baðslopp. Börn að 15 ára aldri hafa aðgang að sundlaug hótelsins milli kl. 14:00 og 17:30, en hafa ekki aðgang að sauna- og gufuböðum.

Á veitingastað hótelsins er boðið upp á ítalska rétti og rétti frá Miðjarðarhafinu, bæði nýja og hefðbundari rétti. Í vínkjallaranum er mikið úrval og ef þú ert ekki viss gefur vínþjónninn góð ráð. 

Á hótel Ariston er hálft fæði, morgunverður og kvöldverður.

Ferðamannaskatturinn í Madonna er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Sjá nánar undir hagnýtar upplýsingar.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 150 km
  • Frá miðbæ: Í göngufæri - 5 mínútur
  • Frá skíðalyftu: 50 m í Belevedere og 100 m í 5 Laghi
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Nettenging
  • Sundlaug: Innisundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind: Gegn gjaldi
  • Gestamóttaka
  • Bar

Vistarverur

  • Herbergi
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun