fbpx Austria Trend Hotel Ananas | Vita

Austria Trend Hotel Ananas
4 stars

Vefsíða hótels

Hótelið sem ber þetta skemmtilega nafn er frábærlega staðsett, miðsvæðis í Vín, skammt frá helstu kennileitum, söfnum, og verslunargötum borgarinnar.

Á hótelinu, sem er stærsta fjögurra stjörnu hótel Austurríkis með 522 herbergi, mætast klassísk hönnun og öll nútímaþægindi.

Herbergin eru glæsilega innréttuð, viðarparkett er á gólfum og baðherbergin eru stílhrein og nútímaleg. Öll herbergin eru með vel hljóðeinangruðum gluggum, stillanlegri loftkælingu og upphitun, ókeypis þráðlausri nettengingu, flatskjá með gervihnatta- og útvarpsrásum, öryggishólfi og hárþurrku.

Veitingasalurinn Zum Moser býður upp á heita og kalda rétti á morgunverðarhlaðborði, þjóðlega jafnt sem klassíska, og státar sig auk þess af því að bjóða upp á lífrænt te og kaffi frá Sonnentor og lífrænt ræktað morgunkorn. Auk þess er hægt að panta sérstaklega nýbakað glútenlaust brauð og annað kruðerí og laktósafría mjólk og jógúrt.

Johann Strauß er kaffihús, veitingastaður og bar og er opinn frá 9 á morgnana til 1 eftir miðnætti. Þar er hægt að upplifa hefðbundna kaffihúsastemningu Vínarborgar á daginn með því að gæða sér á ekta Vínarkaffi og tertum og á kvöldin er boðið upp á þjóðlega og alþjóðlega rétti og safaríkar steikur.

Góð fundaraðstaða er á hótelinu, fjórir salir og aðgengi að tölvu og prentara.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og boðið er upp á þurrhreinsun, strauningu og barnagæslu. Þá er minjagripaverslun í hótelinu.

Hótelið er einstaklega vel staðsett. Lengsta og líflegasta verslunargata Vínarborgar, Mariahilfer Strasse, er í léttu göngufæri og eins Naschmarkt-matarmarkaðurinn sem ætti að gleðja alla sælkera því að þar eru í boði kræsingar, jafnt austurrískar sem og frá framandi löndum. Neðanjarðarlestarstöð er rétt við hótelið og þaðan tekur örfáar mínútur að komast að Schönbrunn eða Belvedere-höllinni, Vínaróperunni og öðrum helstu kennileitum borgarinnar.

Þá má nefna að fyrir þá sem ekki vilja sleppa daglegum hlaupatúr hefur hótelið útbúið kort af hentugum hlaupaleiðum í nágrenninu.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 15 km
  • Miðbær: Við miðbæinn
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging á sameiginlegum svæðum og á herbergjum án endurgjalds

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun