fbpx Austria Trend Savoyen, Vínarborg | Vita

Austria Trend Savoyen, Vínarborg
4 stars

Vefsíða hótels

Gott fjögurra stjörnu hótel í miðborg Vínar með helstu lystisemdir borgarinnar innan seilingar.

Á hótelinu eru 309 herbergi þar sem þau minnstu eru 32 m2. Þessi rúmgóðu og björtu herbergi státa af nútímalegri og glæsilegri hönnun. Í herbergjum er loftkæling, sjónvarp, útvarp, ókeypis þráðlaus netaðgangur, öryggishólf með rafmagnstengingu fyrir fartölvur, smábar og hárþurrka.

Ríkulegt morgunverðarhlaðborð, er til reiðu á veitingastaðnum Prinz von Savoyen á hótelinu og þar er einnig hægt að njóta þjóðlegra austurrískra rétta auk ljúffengra  miðjarðarhafsrétta frá kl. 12 til kl 14 síðdegis.

Veitingastaðurinn Eugenio er opinn á kvöldin og býður upp á sælkerakvöldverð með útsýni yfir borgina. Staðurinn er annálaður fyrir frábæra pastarétti.

Soissons-barinn er opinn frá kl. 8 á morgnana til kl 1 eftir miðnætti. Þar ríkir afslappað andrúmsloft, leikin er ljúf píanótónlist á kvöldin og því kjörið að slaka þar á yfir glasi og snarli eftir skemmtilegan dag í borginni.

Hótel Savoyen liggur mjög vel við bæði söfnum og verslunum og er Vínaróperan er í göngufæri. Við hlið hótelsins er grasagarður borgarinnar.

Eins og glæsihóteli sæmir býður Hótel Savoyen upp á líkamsræktaraðstöðu með sána, gufubaði og nuddi.

Fundar- og ráðstefnusalir, búnir tilheyrandi tækjum, eru í hótelinu.

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 18 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Veitingastaður

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun