fbpx Barbados hótel - á Ensku ströndinni (Playa del Inglés)

Barbados Servatur, Playa del Inglés
2 stars

Vefsíða hótels

Barbados-íbúðahótelið er vel staðsett á Ensku ströndinni (Playa del Inglés) við hliðina á Las Camelias og í nágreni Roque Nublo.

Íbúðirnar eru einfaldar en búnar helstu þægindum og opnast út á svalir. Í eldhúskróknum er eldunaraðstaða, ísskápur, örbylgjuofn, kaffivél og teketill auk nauðsynlegra eldhúsáhalda. Öryggishólf er í íbúðinni. Sjónvörp eru í íbúðunum og hægt er að leigja kvikmyndir. Baðherbergi er annaðhvort með baðkeri eða sturtu. Allar íbúðir eru með 2 svefnherbergjum og taka allt að 4 fullorðna og 1 barn.

Sundlaug er við hótelið og einnig sérstök barnalaug. Við sundlaugina eru sólbekkir og sólhlífar. Lítil matvöruverslun/sjoppa er á staðnum og bar er við sundlaugina. Þráðlaus netaðgangur er á opnum svæðum (gegn gjaldi) svo og tölvuaðstaða.

Enska ströndin er þekkt fyrir fjörugt mannlíf, veitingahús og bari. Frá hótelinu er stutt á ströndina og skammt undan er hin glæsilega Yumbo-verslunarmiðstöð. Þar eru verslanir af öllu tagi veitingahús og barir við allra hæfi og stórmarkaðirnir CITA og Kasbah.  Fyrir þá sem hafa gaman af að taka hring eða tvo á golfvellinum er ekki langt að fara á golfvellina Maspalomas, Meloneras, Salobre eða Anfi Tauro. Þá er vatnsskemmtigarðurinn Aqualand einnig í Maspalomas.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 30 km
  • Veitingastaðir: 300 metrar í veitingastaði, bari og verslanir
  • Strönd: 2 km

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Nettenging: Gegn gjaldi
  • Íbúðir: Íbúðir m/2 herbergjum. Allar íbúðir eru með 2 svefnherbergjum og taka allt að 4 fullorðna og 1 barn.

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun