fbpx Barceló Bilbao Nervión | Vita

Barceló Bilbao Nervión
4 stars

Vefsíða hótels

Mjög gott nútímalegt og stílhreint hótel á besta stað við Nervión-ána í miðbæ Bilbao. Rétt við ráðhúsið og 10 mínútna gangur í Guggenheim-safnið, gamla bæinn og aðalverslunarhverfið.

Í hótelinu eru 350 vistarverur sem skiptast í herbergi sem ætluð eru allt frá einum og upp í sex einstaklinga, og svítur sem rúma tvo fullorðna og tvö börn. Innréttingar er stílhreinar og nútímalegar en jafnframt hlýlegar, í ljósum litum, ljósum við og dempuðum brúnum og grænum litum. Parkett er á gólfum. Stillanleg loftkæling og upphitun er í öllum vistarverum, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, smábar og öryggishólf. Á baðherbergjum er sturta með regnsturtuhaus, hárþurrka, snyrtispegill með stækkun og baðvörur. Þráðlaus nettenging er í hótelinu öllu, gestum að kostnaðarlausu.

Morgunverðarhlaðborðið svignar undan heitum og köldum réttum á veitingastaðnum Ibaizabal. Í hádeginu og á kvöldin er boðið upp á baskneska og alþjóðlega rétta af matseðli með áherslu á hollustu og ferskt hráefni og vínseðillinn er ekki af verri endanum. Við gestamóttökuna er bar og kaffihús þar sem ljúffengir drykkir af öllum gerðum standa til boða auk úrvals spænskra smárétta og snarls af ýmsu tagi.

Líkamsræktaraðstaða er í hótelinu, gestum að kostnaðarlausu.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er töskugeymsla, gjaldeyrisskipti og þvotta- og þurrhreinsiþjónusta. 

Barceló Bilbao Nervión er nútímalegt og fallegt hótel á besta stað við ána sem rennur í gegnum borgina, rétt við ráðhúsið og í um 10 mínútna göngufjarlægð frá Guggenheim-safninu og gamla bæjarhlutanum. Stutt er í aðalverslunarhverfið auk þess sem verslanir og veitingastaðir eru í götunum í kring. Auðvelt er að komast með almenningssamgöngum að öllum helstu kennileitum borgarinnar. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 13 km
  • Miðbær: Rétt við ráðhúsið í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun