fbpx Barcelo Granada Congress | Vita

Barcelo Granada Congress
5 stars

Vefsíða hótels

Gullfallegt hótel á besta stað stutt frá gamla bæjarhlutanum í Granada. Heilsulind, veitingastaður og píanóbar. Verslanir, veitingastaðir og almenningssamgöngur í götunum í kring.

Í hótelinu eru rúmgóðar 249 vistarverur. Herbergin eru 26 fermetrar og ætluð einum, tveimur eða þremur einstaklingum. Tveggja manna svítur eru 50 fermetrar og með heitum potti. Innréttingar eru stílhreinar og fallegar. Ljós og dökkur viður í bland með rauðum áherslulit. Herbergin eru hljóðeinangruð og öll nútímaþægindi eru að sjálfsögðu til staðar, eins og sími flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf sem rúmar fartölvur, lítill ísskápur og loftkæling/hiti. Ókeypis þráðlaus nettenging er á öllu hótelinu. 

Morgunverðarhlaðborðið svignar undan heitum og köldum kræsingum alla daga auk þess sem veitingastaðurinn Las Gacelas sérhæfir sig í andalúsískri matargerð og þar eru réttir valdir af matseðli. Það er ljúft að geta tyllt sér niður hvenær sem er dagsins og slakað á með svalandi kokteil eða hresst sig við með ljúffengum kaffidrykk og snarli á píanóbarnum. 

Í heilsulindinni á efstu hæðinni er innisundlaug og þaðan er útsýnið ekki af verri endanum, yfir borgina, Sierra Nevada fjallgarðinn og Alhambrahöllina. Aðgangur er gegn gjaldi. Nuddpottur er bæði inni og utandyra, gufubað, tyrkneskt bað og líkamsræktaraðstaða. Þá er boðið upp á nudd- og snyrtimeðferðir. Aldurstakmark er 16 ár. 

Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er þvottaþjónusta í boði auk bílaleigu, farangursgeymslu og ráðgjafar um skoðunarferðir.

Barcelo Granada Congress er stórgott hótel á mjög góðum stað í miðborginni. Herbergin eru rúmgóð og góður veitingastaður er í hótelinu auk þess sem úrval veitingastaða, kaffihúsa og verslana er í götunum í kring. Almenningssamgöngur rétt við hótelið og því auðvelt að komast að öllum þeim kennileitum sem ekki eru í göngufjarlægð.

Fjarlægðir

  • Miðbær: Stutt frá gamla bæjarhlutanum
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Hárþurrka
  • Ísskápur: Lítill ísskápur

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun