Barceló Margaritas, Playa del Inglés
Vefsíða hótels

Barceló Margaritas hótelið er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel vel staðsett á ensku ströndinni, en hótelið tilheyri Barcelo hótelkeðjunni sem er þekkt fyrir hágæða þjónustu og fjölbreytta aðstöðu sem hentar öllum aldurshópum.
Á hótelinu er móttaka sem er opin allan sólarhringinn, heilsulind og líkamsræktaraðstaða. Garðurinn er sérstaklega fallegur og býður upp á samtals fjórar sundlaugar, en þar eru tvær aðalsundlaugar, barnalaug og sundlaug eingöngu ætluð fullorðnum með áherslu á ró og næði. Á barnum í garðinum er mikið úrval af drykkjum og léttum réttum sem hægt er að gæða sér á.
Skemmtidagskrá er í boði frá morgni til kvölds en þar má finna ýmis skonar afþreyingu eins og vatnsleikfimi, jóga, pilates og zumba við sundlaugina. Á kvöldin eru danssýningar, lifandi tónlist og margt annað. Barnaklúbbur er fyrir börnin.
Líkamsræktaraðstaðan er hin glæsilegasta og inniheldur nýjustu tækin, þ.m.t. hjól, hlaupabretti, lóð og fleira. Einnig er hægt að spila borðtennis, boccia og fótbolta á svæðinu. Heilsulindin er sannkölluð vin af slökun og vellíðan, en hún sameinar nútímalega aðstöðu, rólegt andrúmsloft og fjölbreytt úrval af ýmis skonar snyrtimeðferðum sem hægt er að panta á staðnum gegn aukagjaldi.
Á hótelinu eru samtals 322 herbergi, hjónaherbergi 35fm sem leyfir mest 3, fjölskylduherbergi 45fm sem leyfir mest 3 fullorðna og 1 barn og hjónaherbergi Deluxe 45fm sem er eingöngu fyrir fullorðna. Öll herbergin eru innréttuð með einföldum en fallegum innréttingum. Öll gistirýmin eru með loftkælingu, minibar og fullbúnu baðherbergi.
Hótelið er með hlaðborðsveitingastað sem framreiðir alþjóðlegan mat. Hægt er að velja um hálft fæði (morgunmatur og kvöldmatur) eða allt innifalið.
Ath. sum svæði á hótelinu eru eingöngu ætluð þeim sem dvelja á Barcelo Margaritas Royal Level
Einnig er í boði ókeypis strætó til Maspalomas- og Playa del Inglés strandanna. Maspalomas golfvöllurinn er 2,2 km frá hótelinu og Playa del Ingles ströndin er í 1,9 km fjarlægð.
Fjarlægðir
- Frá flugvelli: 30 km
- Frá strönd: 1,9 km
- Veitingastaðir: Allt um kring
Aðstaða
- Sturta
- Sundlaug
- Barnasundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Barnadagskrá
- Barnaleiksvæði
- Gestamóttaka
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Þráðlaust net
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
- Herbergi
Fæði
- Allt innifalið, Hálft fæði