Berlin Mark
Vefsíða hótels
Gott hótel við friðsæla götu aðeins 200 metra frá iðandi mannlífinu á Kurfürstendamm verslunarstrætinu í hjarta borgarinnar. Fjöldi veitingastaða er við götuna, öldurhús í næstu götum og spottakorn í almenningssamgöngur auk þess sem aðeins er 10 mínútna göngutúr í dýragarðinn.
Í hótelinu eru 239 vistarverur, frá einstaklingsherbergjum upp í fjölskylduherbergi sem rúma fjóra. Innréttingar eru smekklegar og stílhreinar, í ljósum og líflegum litum. Teppi eru á gólfum. Allar vistarverur eru búnar loftkælingu og upphitun, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum, hægindastól, skrifborði og smábar hið minnsta. Á baðherbergjum er sturta eða baðker, hárþurrka, snyrtispegill og baðvörur. Þráðlaus, nettenging er gestum að kostnaðarlausu.
Morgunverðarhlaðborð er frá klukkan 6 alla morgna í veitingasalnum sem er afar stílhreinn og nútímalegur. Þar eru í boði heitir og kaldir réttir, nýbakað brauðmeti og nýkreistur ávaxtasafi. Þeir sem hafa í hyggju að njóta líflegs næturlífsins í borginni geta glaðst við tilhugsunina um að þó að morgunverðurinn sé aðeins í boði til klukkan 10 virka daga stendur hann til 12 á hádegi um helgar. Á setustofubarnum er boðið upp á snarl, hressandi kaffidrykki, ljúffenga kokteila og gæðavín. Yfir sumartímann er hægt að sitja úti á verönd og njóta veðurblíðunnar.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er þvotta- og þurrhreinsiþjónusta í boði.
Mark hótelið er á fábærum staða í hjarta Berlínar, spottakorn frá Ku‘damm, eða Kurfürstendamm verslunarstrætinu, og næstu neðanjarðarlestarstöð. Þó að aðeins séu léttir réttir í boði á hótelinu er fjöldi veitingastaða í götunni og barir og næturklúbbar í næsta nágrenni. Stutt er í almenningssamgöngur og því auðvelt að komast að öllum helstu kennileitum.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 14 km
Aðstaða
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Minibar
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður