fbpx Best Western Select | Vita

Best Western Select
3 stars

Vefsíða hótels

Þægilegt hótel á góðum stað, stutt frá Santa Maria Novella lestarstöðinni.

Í hótelinu eru 39 herbergi sem rúma frá tveimur og upp í fjóra einstaklinga. Innréttingar eru smekklegar, í klassískum ítölskum stíl. Flest herbergin eru teppalögð.

Herbergin eru öll með loftkælingu og upphitun og í þeim er sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf, smábar og aðstaða til að laga kaffi og te. Á baðherbergjum er hárþurrka, ókeypis baðvörur og ýmist baðker eða sturta. Þráðlaust netsamband er á öllum herbergjum gestum að kostnaðarlausu. 

Morgunverðarhlaðborð er í veitingasal með úrvali af brauðmeti og kruðeríi, alls kyns áleggi og ávöxtum og ávaxtasöfum svo að enginn þarf að leggja af stað svangur út í daginn.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og starfsfólk aðstoðar við bílaleigu, miðakaup, gefur upplýsingar um veitingastaði og hvernig best er að haga ferðum sínum um borgina. Þá eru einnig veittar upplýsingar um fallega staði og ferðir í nágrenni borgarinnar og í sumar þeirra geta gestir látið sækja sig beint á hótelið. Boðið er upp á þvotta- og strauþjónustu alla virka daga.

Hótel Select er á góðum stað, við jaðar gamla bæjarhlutans. Einungis er 10 mínútna gangur á Santa Maria Novella lestarstöðina og strætó stoppar rétt við hótelið svo að auðvelt er að komast að öllum helstu kennileitum í Flórens. Um 20 mín gangur er í miðborgina, en verslanir eru í næstu götum og það sama má segja um veitingastaði og bari.

 

 

 

 

 

 

Fjarlægðir

  • Miðbær: 20 mínútna gangur

Aðstaða

  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Nettenging: Þráðlaust net án endurgjalds

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Minibar
  • Sjónvarp

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun