fbpx Blue Dome, Platanias | Vita

Blue Dome, Platanias
3 stars

Vefsíða hótels

Fínt íbúðahótel í Platanias. Góð aðstaða fyrir alla fjölskylduna. 
Í samstæðunni eru 14 studio, 24 íbúðir með 1 svefnherbergi og ein íbúð með 2 svefnherbergjum.

Allar vistarverur eru með loftkælingu, sjónvarpi með gervihnattarásum, öryggishólfi, ísskáp, síma og kaffivél.
Matarkrókur er með hellum.
Hárþurrka er á baðherbergjum. Svalir búnar húsgögnum eru við allar vistarverur. 
Nettenging er mismunandi eftir staðsetningu. 

Hótelgarðurinn er góður með tveimur sundlaugum. Hægt er að taka góðan sundsprett í 300  fermetra laug á meðan börnin busla í sinni laug. Sólbaðsaðstaða er með sólbekkjum og sólhlífum. 

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Hótelið er með bar og veitingastað. 

Blue Dome er á við strönd með gylltum sandi og tærum sjó. Ekki er langt með leigubíl í verslanir, veitingastaði og iðandi mannlíf. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 34 km
  • Miðbær: 15 km til Chania
  • Strönd: Við strönd

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun