Brilliance of the Seas
Vefsíða hótels

Glæsilegt farþegaskip, 90 þúsund lestir og tekur alls 2.500 gesti auk áhafnar. Um borð er klifurveggur, körfuboltavöllur, spilavíti, heilsulind, barir, veitingastaðir, leikhús, setustofur og sundlaugar.
Klefar eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi (flatskjá,) ísskáp eða smábar, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi.
Baðherbergi með sturtu og snyrtivörum. Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.
Sundlaugar, sólbekkir, nuddpottar, barir og veitingastaðir eru á sólarþilfarinu. Leikir og fjör á daginn og gjarnan lifandi tónlist.
Heilsulindin býður gegn gjaldi ýmsar dekur- og heilsubætandi meðferðir.
Aðal veitingasalurinn er á tveimur hæðum með svölum og glæsilegur í allar staði. Þar dekra prúðbúnir þjónar, vínsérfræðingar og vikapiltar við gesti sína. Aðrir veitingastaðir eru Chops Grill, gott steik hús, Sérrétta veitingastaðurinn Giovanni‘s table er með ítölsku þema. Á þessum veitingastöðum þarf að panta borð og greiða aukagjald. Auk margra annara veitingastaða.
Windjammer er sjálfsafgreiðslu veitingastaður og afar vinsæll fyrir morgun- og hádegisverð. Þar má fá bæði salöt, létta rétti, kjöt, fisk og pasta og að sjálfsögðu er nóg af gómsætum eftirréttum.
Barir eru um allt skipið, hver með sitt þema og er kampavínsbarinn einkar vinsæll. Hægt er að fá eitthvað að borða og drekka nánast allan sólarhringinn. Allan daginn eru veitingastaðirnir opnir. Hægt er að fá morgunverð, hádegisverð, kaffihlaðborð síðdegis og kvöldverð. Ef einhver er svangur á nóttunni, er herbergisþjónusta opin allan sólarhringinn.
Gestir hafa aðgang að leikhúsi og geta njótið þess að horfa á glæsilegar skrautsýningar, töfrabrögð eða tónleika og á börunum eru einnig uppákomur.
Eitthvað fyrir alla að skoða og skemmta sér.
Fjarlægðir
Aðstaða
- Sundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Bar
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Ísskápur
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
Fæði
- Fullt fæði