fbpx Casa Maria, Platanias | Vita

Casa Maria, Platanias
3 stars

Vefsíða hótels

Þægilegt íbúðahótel miðsvæðis í Platanias. Stutt í verslanir, veitingahús og stemninguna í miðbænum.

Á hótelinu eru 48 íbúðir, allt frá stúdíóum og íbúðum á einni hæð sem rúma tvo til þrjá fullorðna, upp í íbúðir á tveimur hæðum (Maizonette) sem rúma tvo til fjóra einstaklinga. Í öllum íbúðum er frí nettenging, sjónvarp, loftkæling, öryggishólf og hárþurrka. Í eldhúskrók er ísskápur, kaffivél, hellur og nauðsynlegustu áhöld til matargerðar. Í öllum íbúðum eru svalir eða verönd. 

Í hótelgarðinum er sundlaug og lítil setlaug. Sólbaðsaðstaða er fín, sólbekkir og sólhlífar eru umhverfis sundlaugina og lítill bar þar sem hægt er að fá sér snarl og kalda drykki.

Fjarlægðir

  • Strönd: 500 metrar, 7 mín gangur
  • Veitingastaðir: Allt um kring
  • Flugvöllur: 30 km, 30-40 mín akstur

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Bar
  • Íbúðir
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Íbúðir

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun