fbpx Celebrity Equinox | Vita

Celebrity Equinox
5 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Celebrity Equinox  er í svokölluðum „Solstice” verðflokki hjá Celebrity Cruises, sem er hæsti klassi skipafélagsins. 

Celebrity Equinox fór í sína jómfrúarferð í ágúst  2009, er 122.000 rúm lestir, rúmlega  300 metrar á lengd og með rými fyrir  2850 farþega.  Skipið er 12 hæðir og á efsta þilfari er Sveitaklúbburinn The Lawn Club með vel snyrtri grasflöt, sólarlagsbarnum og keilubrautum.

Lido er næst efsta þilfarið með skokkbraut, setustofum, veitingastað og bar, allt með gríðarmiklu útsýni til allra átta. Resort þilfarið er með sundlaugum, sundlaugarbar, sólbekkjum og heilsulindinni Aquaspa. Þar eru nuddpottar, gufa, sauna og endalausir mögluleikar á ýmsum  dekur- og heilsubætandi meðferðum. Entertainment þilfarið er með veitingastaði, listmunasölur, kaffihús, ísbúðir o.fl.  Á Promenade þilfarinu eru  litlar verslanir, vínbarir og spilavíti.

Kvöldverður eru borin fram í aðal veitingasal skipsins, sem er á tveimur hæðum. Fleiri veitingastaðir eru um borð eins og Murano sem er með úrval alþjóðlegra rétta á matseðlinum og Tuscan Grille , sem býður ítalska rétti og lúxus steikur.  Silk Harvest  er með asískt eldhús. Greiða þarf sérstakt þjónustugjald á eftirfarandi veitingastöðum. 20 dollarar á Silk Harvest 25 dollarar á Tuscan Grill og 30 dollarar á Murano. Gjaldið er ávallt á mann.

Barir eru um allt skip og þegar kvöldar taka við glæsilegar sýningar og uppákomur í leikhúsinu, sem er á þremur hæðum.

Vínspesíallistar frá vínræktarhéruðunum í Napa Valley eru á barnum Cellar Masters og kenna ykkur  að þekkja göfug vín og velja það besta um borð.

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Herbergi: Klefar með svölum eru í verðflokki 2B á Sunrise og Continental þilfari ytri klefar í verðflokki 08 eru án svala. Þeir eru staðsettir á Plaza þilfari
  • Minibar
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun