fbpx Celebrity Millennium | Vita

Celebrity Millennium
5 stars

Vefsíða hótels

Celebrity Millennium er í svokölluðum „Millenium" flokki hjá Celebrity Cruises, sem er næsthæsti klassi skipafélagsins. Innréttingar skipsins einkennast af marmara, klassískum viðarinnréttingum og gleri. Allur aðbúnaður og vistarverur bera vott um gæði og glæsileika.

Celebrity Millennium fór í sína jómfrúarferð árið 2000 og var allt tekið í gegn árið 2016 og aftur í mars 2019.  Skipið er 91.000 lestir tæplega 300 metrar á lengd og með rými fyrir liðlega 2.000 farþega. Aquaspa er heilsulind með nuddpottum, gufu, sauna, persneskum garði og sólarium með glerþaki. Ótal sérfræðingar bjóða ýmsar dekur- og heilsubætandi meðferðir gegn gjaldi.

Klefarnir eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, minibar, öryggishólfi og sjónvarpi. Hægt er að bóka skoðunarferðir, horfa á kvikmyndir og panta herbergisþjónustu í klefann í gegnum sjónvarpið. Baðherbergi er með sturtu, snyrtivörum, baðsloppum og hárþurrku. Sængurfötin eru ofin úr egypskri bómull og herbergisþjónusta er til reiðu allan sólarhringinn.

Á efsta þilfarinu er skokkbrautin, þar sem hægt er að ganga eða hlaupa hringinn um skipið. Unaðslegur hitabeltisgarður er í útsýnisturninum. "The Conservatory" og á sólarþilfarinu er sundlaug, sólbekkir og barir.

Kvöldverður eru borinn fram í aðal veitingasal skipsins, sem heitir Olympic og er á tveimur hæðum. Við sérstök tækifæri er gaman að bóka borð á Qsine veitingastaðnum, þar sem gestir velja sér matseðilinn með Ipad.

Barir eru um allt skip og þegar kvöldar taka við glæsilegar sýningar og uppákomur í flottu 4ra hæða leikhúsi. Ótal afþreyingarmöguleikar, að ógleymdri fyrsta flokks þjónustunni sem fæst um borð, gera siglingu með Celebrity Milennium ógleymanlega.

Fjarlægðir

  • Veitingastaðir: Um borð

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Herbergi: Herbergi með svölum eru í verðflokki 2A

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir: Í ákveðnum verðflokki, sjá verð og innifalið

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun