Celebrity Reflection
Vefsíða hótels

Eitt glæsilegasta farþegaskipið í flota Celebrity Cruises sem fór í sína jómfrúarferð árið 2012.
Skipið er 12 hæðir, 126.000 lestir, rúmlega 300 metrar á lengd og með rými fyrir 3046 gesti auk áhafnar.
Lido er næst efsta þilfarið með skokkbraut , setustofum, veitingastað og bar, allt með gríðarmiklu útsýni til allra átta. Resort þilfarið er með sundlaugum, sundlaugarbar, sólbekkjum og heilsulindinni Aquaspa. Entertainment þilfarið er með veitingastaði, listmunasölur, kaffihús, ísbúðir o.fl. og á Promenade þilfarinu eru litlar verslanir, vínbarir og spilavíti. Veitingasalir eru glæsilegir og um allt skip eru barir, hver með sínu þema.
Rúmgóðir klefa með öllum þægindum og herbergisþjónusta er opin allan sólarhringinn.
Ótal afþreyingarmöguleikar, að ógleymdri fyrsta flokks þjónustunni sem fæst um borð, gera siglingu með Celebrity Reflection ógleymanlega.
Fjarlægðir
- Veitingastaðir: Um borð
Aðstaða
- Sundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Bar
- Heilsulind
- Líkamsrækt
Vistarverur
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Minibar
- Hárþurrka
- Verönd/svalir: Ef keyptur er klefi með svölum
Fæði
- Fullt fæði