fbpx Clube Albufeira | Vita

Clube Albufeira
3 stars

Vefsíða hótels

Vinsælt og fjölskylduvænt íbúðahótel á þessum fjölsótta stað með frábærum sundlaugum, veitingastöðum og hlýlegu andrúmslofti.

Í Clube Albufeira eru 150 eins, tveggja og þriggja svefnherbergja íbúðir í tveggja hæða húsum, sem byggð eru umhverfis stóran og fallegan sundlaugargarð, og rúma þær stærstu 8 manns. Íbúðirnar eru flísalagðar, bjartar og afar rúmgóðar. Í öllum íbúðum er upphitun, kapalsjónvarp (þó engar íþróttarásir) og öryggishólf. Hárþurrka er á baðherbergi. Þráðlaust netsamband er aðgengilegt á almenningssvæðum gegn gjaldi og sömuleiðis snúrutengt í viðskiptamiðstöðinni, einnig gegn gjaldi. Eldhús er fullbúið með eldavél, bakaraofni, örbylgjuofni, kaffivél, brauðrist og hraðsuðukatli auk allra nauðsynlegra áhalda og borðbúnaðar. Svalir eða verönd eru á öllum íbúðum. Standard íbúðir eru án loftkælingar en Superior íbúðir eru með loftkælingu

Tveir veitingastaðir, Pavilhão og Casa Azul, eru í samstæðunni og hægt að sitja bæði úti og inni. Þar má fá bæði alþjóðlega rétti og kræsingar úr héraði. Sömuleiðis eru tveir barir staðnum, Pergola og Cascata, og þar fást léttir réttir auk svalandi og ljúffengra drykkja. Hægt að bóka/kaupa fæði á staðnum. Morgunverður 8 evrur á dag, hálft fæði 22 evrur, fullt fæði 30 evrur, allt innifalið 35 evrur

Auk annarrar þjónustu má nefna að lítil verslun er á staðnum, sjálfsalar með bæði drykki og snarl og hraðbanki og unnt er að fá nudd. 

Fjórar sundlaugar, hver með sínu barnasvæði, eru í fallegum garði og þar er auðvitað sólverönd með bekkjum og sólhlífum.

Ýmislegt er við að vera, til dæmis eru tveir tennisvellir, mini-golfbraut og billjardborð á staðnum og stutt er að fara til að komast í snorkuköfun, á sjóskíði og seglbretti. Reiðhjólaleiga er á staðnum. Þá má einnig nefna að urmull golfvalla er í Albufeira og nágrenni og því óþarfi að týna sveiflunni niður þótt farið sé út fyrir landsteinana. Ókeypis strætóferðir eru til gamla bæjarins í Albufeira og nálægra stranda nokkrum sinnum á dag.

Í Albufeira eru skemmtilegir og fjörugir barir og veitingastaðir. Náttúruunnendur geta komist í höfrunga- og hellaskoðun frá Albufeira og þar er einnig körtubraut (go-kart).

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 35 km
  • Miðbær: 2 km
  • Strönd: 2 km
  • Veitingastaðir: Á hótelinu

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Líkamsrækt
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging er gegn gjaldi á sameiginlegum svæðum
  • Herbergi: 1, 2 og 3ja herbergja íbúðir, taka allt að 8 manns Standard íbúðir eru án loftkælingar en Superior íbúðir eru með loftkælingu

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun