fbpx Cornaro | Vita

Cornaro
4 stars

Vefsíða hótels

Fjögurra stjörnu hótel staðsett á góðum stað í miðbænum en allt um kring má finna veitingastaði, verslanir og litskrúðugt mannlíf.  Í göngufjarlægð frá hótelinu er hægt að komast í gamla bæinn en þar má finna þröngar og afar sjarmerandi götur sem minna einna helst á völundarhús og forna tíma.

Á hótelinu er mjög góð aðstaða eins og  veitingastaðir, barir og gestamóttaka sem er opin allan sólarhringinn. Þarna er einnig  líkamsrækt og heilsulind þar sem hægt er að panta ýmsar meðferðir. Uppi á þaki hótelsins er hægt að njóta afar fagurs útsýnis yfir borgina, en þar má finna útibar með setuaðstöðu og nuddpotti. 

Herbergin eru öll búin helstu nútímaþægindum eins og sjónvarpi, síma, loftkælingu, minibar og fullbúnu baðherbergi með sturtu og helstu snyrtivörum. Herbergisþjónusta og þráðlaust internet er einnig til staðar. 

Góður kostur fyrir þá sem vilja vera á góðum stað í borginni. 

Fjarlægðir

  • Miðbær: Í göngufæri - 10 mínútur
  • Veitingastaðir: Í næsta nágrenni
  • Flugvöllur: 24,5 km.

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Nettenging
  • Aðgengi fyrir fatlaða: Já

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun