fbpx Crowne Plaza City Centre Berlin | Vita

Crowne Plaza City Centre Berlin
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt hótel, spölkorn frá dýragarðinum, Kurfürstendamm-verslunarstrætinu og KaDeWe-vöruhúsinu. Veitingastaður og heilsulind á hótelinu og veitingastaðir og öldurhús í götunum í kring.
Stutt er í almenningssamgöngur.

Í hótelinu eru 423 herbergi og svítur af ýmsum gerðum, sem rúma allt að fjóra einstaklinga. Innréttingar eru stílhreinar og hlýlegar, í ljósum við og hlutlausum litum. Teppi er á gólfum. Herbergin eru búin öllum nútímaþægindum eins og loftkælingu, smábar, öryggishólfi og aðstöðu til að laga te og kaffi, auk 40 tommu flatskjársjónvarps með 200 stöðvum á 24 tungumálum. Í öllum herbergjum er góð ókeypis LAN, WLAN eða þráðlaus nettenging. Á baðherbergjum er sturta eða baðker, hárþurrka, baðvörur og snyrtispegill.

Heitir jafnt sem kaldir réttir, nýbakað brauðmeti auk laktósa- og glútenlauss gómsætis er í boði af hlaðborði alla morgna. Á Wilson’s – The Prime Rib Restaurant er áherslan, eins og nafnið gefur til kynna, á amerískar nautasteikur auk alþjóðlegrar matargerðar. Tekið skal fram að veitingastaðurinn er opinn frá þriðjudegi til laugardags. Setustofubarinn er glæsilegur og þar eru ostakökur, club-samlokur og salöt af ýmsum gerðum í boði alla daga, auk ljúffengra drykkja að sjálfsögðu. Þá er Kemmons-barinn á hótelinu vinsæll jafnt meðal hótelgesta sem annarra.

Heilsulind er í hótelinu með 5 x 10 metra innisundlaug, gufubaði, bar, hvíldarhreiðri og líkamsræktaraðstöðu. Einnig eru í boði taílenskt nudd auk annarra nudd- og líkamsmeðferða.
Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er töskugeymsla og hraðbanki.

Crowne Plaza City Center er glæsilegt hótel á frábærum stað, í tveggja mínútna göngufjarlægð frá dýragarðinum og einu aðalverslunarstræti Berlínar. Stutt er í almenningssamgöngur og því auðvelt að komast að öllum helstu kennileitum borgarinnar.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 16 km, Tegel (TXL)
  • Miðbær: Spölkorn frá Kurfürstendamm-verslunarstrætinu
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun