fbpx CS Dunas Suites, Salgados | Vita

CS Dunas Suites, Salgados
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt hótel sem stendur við Salgados ströndina í Algarve héraði rétt við bæinn Guia. 

Aðeins um 10-15 mín akstur frá miðbæ Albufeira. Herbergin sem VITA býður upp á eru standard tveggja manna herbergi með hálfu fæði innifalið í verði.

Dunas Suites er hluti af CS hotels keðjunni en 5 CS hótel eru við Salgados ströndina sem er einstaklega falleg, breið og hrein sandströnd. Hótelin mynda lítið þorp, en þar er auk hótelanna matvöruverslun, veitingastaður, tveir barir, hraðbanki auk nokkura smáverslana og yfir sumartímann eru tveir veitingastaðir á ströndinni. Stór líkamsræktarstöð með tækjasal, hóptímum og 25 metra innilaug auk heilsulindar er alveg við hótelið. Yfir sumartímann er líka starfræktur barnaklúbbur fyrir hótelin.

Auðvelt er að komast til Albufeira með því að kaupa sér miða í „hop on hop of" rútu eða taka leigubíl.

Við hótelið eru 3 sundlaugar, 1 barnalaug og 2 dýpri.

Hótelið er með 154 herbergjum sem öll eru björt og falleg. Aðbúnaður á herbergjum er fyrsta flokks. Þau eru rúmgóð með flatskjá - síma - öryggishólfi og baðherbergi sem er með stórum sturtuklefa og hárþurrku.

Eitt herbergi er sérstaklega útbúið með aðgengi fyrir hjólastóla en það þarf að sérpanta á skrifstofu VITA.

Dunas Suites útvegar gestum sínum sundlaugar-, strandhandklæði endurgjaldslaust.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 50 km
  • Miðbær: 9 km
  • Strönd: 150 m
  • Veitingastaðir: 300 m

Aðstaða

  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Skemmtidagskrá
  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Nettenging: Frítt á almenningssvæðum

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun