fbpx Daytona Beach Resort, Daytona | Vita

Daytona Beach Resort, Daytona
3 stars

Vefsíða hótels

Mjög huggulegt hótel á besta stað við ströndina í Daytona. Beint aðgengi að einkaströnd, úti- og innisundlaugar, veitingastaðir og bar í hótelinu. Veitingastaðir og verslanir í kring. Almenningssamgöngur beint fyrir utan hótelið. Fullkomin slökun og allt til alls.

Í hótelinu eru 322 vistarverur, sem skiptast í herbergi, stúdíó og svítur og rúma frá tveimur upp í sex einstaklinga. Innréttingar eru klassískar og smekklegar, í mismunandi við og litum. Teppi eru á gólfum, flísar í eldhúskrók. Í öllum vistarverum er eldhúskrókur með ísskáp í fullri stærð, örbylgjuofni, helluborði með tveimur hellum, kaffivél og brauðrist, auk allra tilheyrandi áhalda. Alls staðar er flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, loftkæling og upphitun, öryggishólf og straujárn og -borð, auk ókeypis þráðlausrar nettengingar. Á baðherbergjum er hárþurrka og baðvörur. Útsýnið er ýmist út á Atlantshafið eða yfir Daytona-lónið og inn til lands.
Morgun-, kvöld- og hádegisverður er borinn fram á Reflections-veitingastaðnum þar sem útsýnið er yfir hafið og hægt er að sitja úti þegar veður leyfir. Á kaffihúsinu Revive fæst kaffi frá Starbucks og alls kyns snarl og nokkrir sjálfsalar eru í hótelinu.

Þrjár sundlaugar eru við hótelið með góðri sólbaðsaðstöðu með handklæðum, sólbekkjum og sólhlífum í kring. Fyrir þá sem langar að dýfa tánum aðeins í saltan sjóinn er ekki langt að fara því að beint aðgengi er að ströndinni og nokkrir metrar niður að sjó. Við sundlaugarnar er skemmtilegur bar með útiarni og þar er boðið upp á úrval kokteila og létta rétti.

Fínasta líkamsræktaraðstaða er í hótelinu og þar er góð innilaug og tveir nuddpottar.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar eru hraðbankar auk þess sem starfsfólk aðstoðar við bílaleigu og miðakaup. Þvottavélar eru á nokkrum hæðum hótelsins sem gestir hafa aðgang að.

Daytona Beach Resort er þægilegt og gott hótel á frábærum stað við Daytona-ströndina. Beint aðgengi að ströndinni og stutt í vatnasport og aðra afþreyingu, jafnvel golf. Veitingastaðir og verslanir eru í nágrenni hótelsins og almenningssamgöngur stoppa fyrir utan.

Fjarlægðir

  • Strönd: Við strönd
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun