fbpx Oberosler Design hotel í Madonna

Design Oberosler
4 stars

Vefsíða hótels

Fallegt hönnunarhótel á frábærum stað í Madonna. Veitingastaður og heilsulind með innilaug. 10 metrar í Spinale-kláfinn og 5 mínútna gangur í Pradalago-kláfinn. 100 metrar í miðbæinn. 

Í hótelinu eru 40 smekklega innréttaðar vistarverur sem skiptast í eins og tveggja manna herbergi, fjölskylduherbergi fyrir fjóra og tveggja manna svítur. Herbergin eru ýmist einstaklega nútímalega hönnuð eða nútímaleg og klassísk í bland, viður og litur á áklæði misjafn eftir herbergjum. Parkett er á gólfum. Alls staðar er kynding, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, sími, öryggishólf, smábar og ókeypis þráðlaus nettenging. Á baðherbergjum er baðker eða sturta, hárþurrka, baðsloppar, inniskór og baðvörur. Við allar vistarverur er verönd eða svalir.  

Á veitingastaðnum I tre sensi er morgunverðarhlaðborð alla daga og ítalskir og alþjóðlegir réttir með nútímayfirbragði í hádegi og á kvöldin. Að sjálfsögðu er boðið upp á gæða vín, alþjóðleg jafnt sem ítölsk. Diskótekið sér um að engum þurfi að leiðast á kvöldin, hvað þá þjást af þorsta, og það sama má segja um ameríska setustofubarinn þar sem boðið er upp á happy hour alla eftirmiðdaga.
Í hótelinu er glæsilega hönnuð heilsulind með 15 metra upphitaðri sundlaug klæddri með Bisazza-mósaikflísum, nuddpotti og barnalaug. Meðfram sundlauginni eru sérlega þægilegir bekkir til að slaka á og láta alla þreytu líða úr sér og útsýnið er ekki af verri endanum, yfir 3-Tre svigbrautina. Þurr- og blaut- og innrauð gufa er einnig í boði ásamt heitum og köldum sturtum auk úrvals nudd- og líkamsmeðferða. Einnig er nuddpottur utandyra.

Skíðaskóli er starfræktur við hótelið og þar er einnig skíðageymsla. Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er farangursgeymsla og þvotta-, þurrhreinsi- og strauþjónusta. 

Oberosler hönnunarhótelið er á besta stað, spölkorn frá miðbænum í Madonna di Campiglio og frábærum skíðalyftum. Veitingastaður, góður bar og diskótek ásamt heilsulind og því allt til að endurnæra líkama og sál eftir góðan dag í brekkunum.

Fjarlægðir

  • Skíðalyfta: 10 m í Spinale -kláfinn
  • Miðbær: 100 m í miðbæinn

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Upphituð skíðageymsla
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Lyfta

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Loftkæling: kynding

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun