fbpx Edmonton Marriott at River Cree Resort | Vita

Edmonton Marriott at River Cree Resort
4 stars

Vefsíða hótels

Mjög gott hótel á besta stað í Edmondton. Ókeypis skutluþjónusta að West Edmonton verslunarmiðstöðinni og auðvelt að komast með bíl að helstu kennileitum borgarinnar. Veitingastaðir, barir og spilavíti sambyggt hótelinu. 

Í hótelinu eru 249 rúmgóð, björt og reyklaus herbergi og svítur. Herbergin eru minnst 28 fermetrar og rúma allt að þrjá fullorðna og eitt barn. Innréttingar eru klassískar og hlýlegar, teppi á gólfum og gluggar eru gólfsíðir. Öll herbergi eru búin loftkælingu og upphitun, síma, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum, litlum ísskáp, aðstöðu til að laga te og kaffi og straujárni og -borði hið minnsta. Öryggishólf er gegn gjaldi. Á baðherbergjum er baðkar með sturtu, hárþurrka og baðvörur. Concierge-herbergjum fylgja baðsloppar, inniskór og ýmis önnur fríðindi. Þráðlaus nettenging er gestum að kostnaðarlausu í sameiginlegum rýmum í hótelinu en gegn gjaldi á herbergjum. 

Á Kitchen Buffet & Bistro er morgunverðarhlaðborð með heitum og köldum réttum, og alþjóðlegum réttum af hlaðborði í hádegi og á kvöldin. Í The Lobby Lounge fæst Starbucks-kaffi og nýbakað bakkelsi og léttir réttir í hádeginu og á kvöldin. Við hliðina á hótelinu er Sage sem sérhæfir sig í safaríkum steikum og kokteilum af öllu tagi og Tap 25 sportbarinn státar af  25 tegundum af bjór. 

Innisundlaug og nuddpottur eru í hótelinu og ágæt líkamsræktaraðstaða með nauðsynlegustu tækjum. 

Móttakan er að sjálfsögðu opin allan sólarhringinn og þar er töskugeymsla, hraðbanki, myntþvottahús og þvotta- og þurrhreinsiþjónusta. 

Marriott at River Cree Resort er frábærlega staðsett, hvort sem ætlunin er að dvelja sem mest í West Edmonton verslunarmiðstöðinni, en hótelið býður upp á ókeypis skutluþjónustu þangað, láta reyna á heppnina í spilavítinu, skreppa á tónleika eða skoða sig um í Edmonton. Hótelið er aðeins 20 mínútur frá flugvellinum og næg ókeypis bílastæði fyrir þá sem ætla leigja bíl og skoða næsta nágrenni. 

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 40 km
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Líkamsrækt
  • Sundlaug: Innisundlaug og nuddpottur
  • Nettenging: Gestum að kostnaðarlausu í sameiginlegum rýmum en gegn gjaldi á herbergjum

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Hárþurrka
  • Ísskápur: Lítill ísskápur
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun