fbpx Erato Beach, Platanias | Vita

Erato Beach, Platanias
3 stars

Vefsíða hótels

Erato Beach er fallegt íbúðahótel staðsett á frábærum stað alveg við ströndina í Platanias.

Hótelið er eingöngu fyrir fullorðna og bíður upp á bæði stúdíó íbúðir fyrir tvo til þrjá og íbúðir með einu svefnherbergi fyrir allt að fjóra. Íbúðirnar eru snyrtilegar og innréttaðar á látlausan hátt, allar með sófa, sófaborði, sjónvarpi, litlum setkrók og litlu eldhúsi. Loftkæling og upphitun er í öllum íbúðunum. Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og starfsfólk aðstoðar við miðakaup eða leigu á bíl eða hjóli. Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, einn við sundlaugina og hinn með útsýni yfir aðalgötuna í Platanias. 

Hótelið er sérstaklega hannað til að einangra hávaða frá umhverfinu og því góður kostur fyrir þá sem vilja slaka vel á í fríinu. Einnig er þó valkostur að komast í iðandi mannlífið á strandgötunni þar sem nóg er af veitingastöðum, börum og verslunum. 

Fjarlægðir

  • Strönd: Við ströndina
  • Veitingastaðir: Allt um kring
  • Flugvöllur: 30 km

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Íbúðir
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi

Fæði

  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun