fbpx Flash hotel. Góður staður. Levante ströndin. Gamli bærinn nálægt.

Flash Hotel, Benidorm
4 stars

Vefsíða hótels

Flash hótel er staðsett í um 300 m frá Levante ströndinni og 10 mínútna göngufjarlægð frá gamla bænum.

Það er endurgert hótel á gömlum grunni, bjart og litaglatt.

ATH. Hótelið er eingöngu fyrir fullorðna.

Á björtum og líflegum herbergjunum er loftkæling, sími, lítill ísskápur og smábar, öryggishólf (ef óskað er) og svalir. Þráðlaus nettenging er á almenningssvæðunum, gestum að kostnaðarlausu.
Ef þrír ferðast saman er hægt er að fá aukarúm í tveggja manna herbergi, en auk þess er hægt að sérpanta herbergi fyrir fjóra.

Í gestamóttökunni er hægt að fá upplýsingar um bíla- og hjólaleigu, skemmtigarða í nágrenninu, veitingastaði, verslanir í nágrenninu og margt fleira.

Á hótelinu er vel búin líkamsrækt þar sem m.a. er hægt að fá nudd og fara í gufu (gegn auka gjaldi). Útisundlaug er á svæðinu og önnur minni laug.

Á Flash er veitingastaður og tveir barir þar sem hægt er að fá snarl og létta rétti; annar er við sundlaugina, og á hinum, Flash Bar, er lifandi tónlist á hverju kvöldi.

Hægt er að velja um gistingu með morgunverði eða hálfu fæði (morgun- og kvöldverður).

Flash-hótelið útvegar gestum sínum strandhandklæði gegn tryggingu á meðan á dvöl stendur.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 56 km - 50 mínútur
  • Frá miðbæ: Í miðbænum
  • Frá strönd: 5-7 mínútur gangandi
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í nágrenni

Aðstaða

  • Nettenging: gegn gjaldi
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður

Vistarverur

  • Herbergi
  • Minibar
  • Ísskápur
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun