fbpx Freedom of the Seas | Vita

Freedom of the Seas
5 stars

Vefsíða hótels

Freedom of the Seas. er eitt af stóru skipunum í flotanum. Freedom er 154,400 tonn og um 339 metra langt. Skipið var smíðað í Turku í Finnlandi 2006 og síðan algerlega endurnýjað 2011, árið 2016 fór það í þurrkví þar sem Skipt var út klefum og fl. Á Freedom of the Seas er göngugata „Royal Promenade“ þar sem iðar allt af lífi, kaffihús, verslanir og veitingastaðir. Í leikhúsinu er boðið upp á Bradway sýningar. Skautasvellið er á sínum stað þar sem gestir geta reynt sig á skautum eða farið á ótrúlega skautasýningu. Á hverju kvöldi er boðið upp á þriggja rétta máltíð í aðal veitingastaðnum sem er upp á þrjár hæðir, auk þess sem eru nokkrir sérveitingastaðir auk bara og skemmtistaða.  Á sundlaugardekkinu eru 4 sundlaugar, 6 heitir pottar þar af tveir pottar sem koma í boga út fyrir skipið, ævintýralegt barnasundsvæði og rólegt fullorðinssvæði „ solarium“Á sport svæðinu er körfuboltavöllur, minigolf, klifurveggur og brimbrettalaug ( flow rider). Fullkomin líkamsræktarstöð sem býður upp á jóga og ýmsa aðra tíma. Snyrtistofa (Spa) með mikið af alls konar meðferðum. Freedom of the Seas rúmar allt að 4500 farþega og er með 1360 manna áhöfn.  

Klefar eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi með flatskjá, ísskáp eða smábar, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu og snyrtivörum. Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.

Fjarlægðir

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi
  • Sjónvarp:
  • Öryggishólf:
  • Hárþurrka:

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun