fbpx Globales Playa Estepona | Vita

Globales Playa Estepona
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt fjögurra stjörnu hótel staðsett alveg við ströndina í Estepona sem er strandbær rétt hjá Marbella eða í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Puerto Banús bátahöfninni. 

Aðstaðan á hótelinu er mjög góð og hentar einstaklega vel fjölskyldufólki, en þarna er stór og fallegur sundlaugargarður þar sem má finna 5 sundlaugar, þ.a.m. vatnsrennibrautargarður sem kallaður er Splash World og býður upp á nokkrar stórskemmtilegar vatnsrennibrautir og er þar eitthvað í boði fyrir alla aldurshópa frá litlum börnum allt til fullorðinna. Fyrir þá sem sækja frekar í rólegheit heldur en buslugang, er lítið mál að finna sér góðan stað í fallegu umhverfi við eina af þeim sundlaugum þar sem ríkir ró og næði. Allt um kring í garðinum og einnig á ströndinni eru sólbekkir og sólhlífar.  í garðinum er einnig útibar þar sem bæði er hægt að svala þorstanum og fá sér eitthvað gott að borða. 

Hótelið býður upp á allt innifalið og er morgunverður, hádegis- og kvöldverður borinn fram af hlaðborði þar sem hægt er að horfa á kokkana að störfum. Starfsfólk hótelsins sér um afþreyingu frá morgni til kvölds, barnaklúbbur er á svæðinu og barnaleiksvæði og því er hægt að segja að eitthvað sé um að vera allan daginn, en  á kvöldin er mini disco og eftir það tekur við skemmtun fyrir þá eldri. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, tennisvöllur, borðtennis, pílukast og karokí bar. 

Herbergin eru fallega búin og eru öll með sjónvarpi, síma. öryggishólfi, loftkælingu og litlum ísskáp svo eitthvað sé nefnt. Val er um herbergi með svölum eða herbergi með svokallaðar franskar svalir, sem er eins og gluggi og því er ekki hægt að ganga út á þær. Baðherbergi eru ýmist með baðkari eða sturtu og helstu snyrtivörum. Móttaka er opin allan sólarhringinn, þráðlaust net er á öllum svæðum og einnig inn á herbergjum. 

Golfvöllurinn Atalaya Golf er í næsta nágrenni við hótelið og því er tilvalið fyrir golfáhugafólk að stoppa þar við. 

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 45 mín. akstur
  • Strönd: 8 km. Puerto Banus í Marbella
  • Strönd: Við strönd
  • Veitingastaðir: Í næsta nágrenni
  • Miðbær: 20 mín - Marbella

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Hárþurrka
  • Herbergi
  • Verönd/svalir: Val er um herbergi með svölum eða án (franskar svalir)

Fæði

  • Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun