Grand Aston og Iberostar Bellavista

Hægt er að lesa meira um Grand Aston hér
Hægt er að lesa meira um Iberostar Bellavista hér
Grand Aston er staðsett í Vedado hverfinu, beint fyrir framan Malecón.Hótelið er splunkunýtt, staðsett í tveimur 25 hæða byggingum og á því eru 600 glæsileg og björt herbergi, öll með loftkælingu, öryggishólfi, kaffivél, minibar, straujárni, strauborði og hárþurrku. Internet er á almennum svæðum sem kostar 5$ fyrir sólarhringinn. Huggulegur sundlaugargarður er á hótelinu með stórkostlegu útsýni yfir Havana flóann.
Heilsulind hótelsins bíður upp á heitan pott, heilsumeðferðir, líkamsræktaraðstöðu og sauna, allt gegn auka gjaldi. Á hótelinu er flottur "lobby" bar sem bíður upp á úrval kokteila og sælkeraveitingastaður með fjölbreytt úrval rétta. Á hótelinu er morgunverður innifalinn
Iberostar Bellavista er glæsileg hótelsamstæða á fábærum stað við gyllta sandströndina í Varadero.
Í hótelinu eru 827 rúmgóð herbergi og svítur sem rúma frá þremur fullorðnum upp í tvo fullorðna og tvö börn. Innréttingar eru einstaklega stílhreinar og nútímalegar, í hvítum litum og með áklæði í skærum tónum. Flísar eru á gólfum. Loftkæling, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf og lítill ísskápur er í öllum vistarverum hið minnsta. Hárþurrka og baðvörur eru á baðherbergjum. Við öll herbergi eru svalir eða verönd. Þráðlaus nettenging er gegn gjaldi á sérstöku svæði.
Í hótelgarðinum eru fjórar sundlaugar, sólbekkir og sólhlífar, hengirúm og beddar. Beint aðgengi er niður á gylltan sandinn við volgan sjóinn, þar eru sólbekkir og skálar þar sem hægt er að panta sér nudd eða taka þátt í vatnasporti og leikjum sem starfsfólkið sér um. Á hótelinu er allt innifalið
Fjarlægðir
- Flugvöllur: Grand Aston: 1,5 klst akstur
- Flugvöllur: Bellavista: 30 km
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Lyfta
- Nettenging: Gegn gjaldi
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Hárþurrka
Fæði
- Allt innifalið
- Morgunverður