Grand Aston og Iberostar Varadero

Hægt er að lesa meira um Grand Aston hér
Hægt er að lesa meira um Iberostar Varadero hér
Grand Aston er staðsett í Vedado hverfinu, beint fyrir framan Malecón.Hótelið er splunkunýtt, staðsett í tveimur 25 hæða byggingum og á því eru 600 glæsileg og björt herbergi, öll með loftkælingu, öryggishólfi, kaffivél, minibar, straujárni, strauborði og hárþurrku. Internet er á almennum svæðum sem kostar 5$ fyrir sólarhringinn. Huggulegur sundlaugargarður er á hótelinu með stórkostlegu útsýni yfir Havana flóann.
Heilsulind hótelsins bíður upp á heitan pott, heilsumeðferðir, líkamsræktaraðstöðu og sauna, allt gegn auka gjaldi. Á hótelinu er flottur "lobby" bar sem bíður upp á úrval kokteila og sælkeraveitingastaður með fjölbreytt úrval rétta. Á hótelinu er morgunverður innifalinn.
Iberostar Varadero er frábært 5 stjörnu hótel við ströndina í Varadero með öllu inniföldu. Á hótelinu eru 386 rúmgóð herbergi í 11 byggingum sem standa umhverfis fallegan sundlaugagarð. Tripadvisor telur þetta hótel það besta í Varadero.Öll herbergi eru rúmgóð og með svölum eða palli. Í hverju herbergi er einnig loftræsting, gervihnattasjónvarp, geisladiskaspilari, sími, smábar, te og kaffivél, öryggishólf, straujárn og straubretti og hárblásari á baði. Í garðinum eru 3 frábærar sundlaugar og sundlaugarbar auk góðrar barnalaugar. Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu sem og sauna og nuddpottur. Á hótelinu er einnig heilsulind sem býður upp á hinar ýmsu snyrti-, vellíðunar- og heilsumeðferðir gegn gjaldi. Á hótelinu er allt innifalið.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: Grand Aston: 1,5 klst akstur
- Flugvöllur: Iberostar Varadero: 15 km
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Lyfta
- Nettenging: Gegn gjaldi
- Aðgengi fyrir fatlaða: Þarf að sérpanta
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Hárþurrka
Fæði
- Allt innifalið
- Morgunverður