Grand Baglioni, Flórens
Vefsíða hótels

Flott hótel á besta stað í hjarta Flórens, rétt við lestarstöðina og í léttu göngufæri við öll helstu kennileiti og verslunargötur borgarinnar.
Í hótelinu er hátt til lofts og vítt til veggja, steint gler er í gluggum og vistarverur allar hinar glæsilegustu. 193 nýlega uppgerð herbergi og svítur sem rúma frá einum og upp í fjóra eru í hótelinu. Innréttingar eru sérsmíðaðar, í hlýlegum, klassískum flórentínskum stíl. Viðarparkett er á gólfum. Ekkert skortir á nútímaþægindin, stillanleg loftkæling og upphitun er í öllum herbergjum, sími, flatskjársjónvarp, smábar, öryggishólf og inniskór. Á baðherbergjum er hárþurrka, baðvörur, baðker og sturta. Hægt er að fá herbergi sem snúa inn í hótelgarðinn, við þau er verönd búin húsgögnum. Þráðlaus nettenging er gestum að kostnaðarlausu.
Veitingastaðurinn Terrazza Brunelleschi er á fimmtu hæðinni og þar er útsýnið óviðjafnanlegt yfir borgina, maturinn ómótstæðilegur, og hægt er að borða undir berum himni á sumrin. Á jarðhæðinni er veitingastaðurinn Melarancio. Ameríski barinn í hótelinu er ekki síður vinsæll meðal heimamanna en hótelgesta og yfir sumarmánuðina er píanóbar opinn á þakveröndinni.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn, þar er töskugeymsla og boðið er upp á þvottaþjónustu, þurrhreinsun og strauningu. Starfsfólk aðstoðar við bílaleigu, miðakaup og annað sem með þarf.
Grand Hotel Baglioni er í 19. aldar hallarbyggingu sem prinsinn af Carrega Bertolini lét reisa. Prinsinn var framsýnn maður með gott viðskiptavit og þar sem hann var viss um að staðsetningin væri einstök, í hjarta Flórens og rétt við lestarstöðina, ákvað hann að breyta byggingunni í hótel þegar hann flutti sjálfur til Rómar árið 1903. Þetta reyndist rétt ákvörðun enda hefur hótelrekstur blómstrað þar síðan. Flottustu verslunargötur borgarinnar eru í örfárra metra fjarlægð og öll helstu söfn og kennileiti eru í léttu göngufæri.
Vinsamlega ath. að ferðamannaskatt þarf að greiða við komu og er hann EUR 4.50 á mann / á nótt fyrir Baglioni.
Fjarlægðir
- Miðbær: 500 metar eða um 6 mín ganga að dómkikjunni
Aðstaða
- Veitingastaður
- Bar
- Herbergi
- Nettenging: Þráðlaust net án endurgjalds
Vistarverur
- Hárþurrka
- Minibar
- Sjónvarp
- Öryggishólf
Fæði
- Morgunverður
- Án fæðis