fbpx Grand Hotel Mediterraneo | Vita

Grand Hotel Mediterraneo
4 stars

Vefsíða hótels

Gott og þægilegt hótel, vel staðsett við bakka árinnar Arno í miðborg Flórens. Stutt frá Santa Croce torgi og stutt frá helstu kennileitum, söfnum og verslunargötum.
Í hótelinu eru 330 bjartar vistarverur, sem skiptast í herbergi sem rúma frá einum og upp í fjóra einstaklinga, og tvær svítur. Innréttingar eru glæsilegar, ýmist í skærum litum eða dempuðum með dökkum við. Öll nútímaþægindi eru til staðar, loftkæling og upphitun, sími, flatskjársjónvarp, öryggishólf og smábar. Á baðherbergjum er hárþurrka og baðvörur og ýmist baðker eða sturta. Útsýnið er töfrandi úr mörgum herbergjanna, ýmist yfir ána Arno, hæðirnar fyrir ofan Flórens eða Michelangelo-torg. Ókeypis þráðlaus nettenging er á herbergjum.
Þrír veitingastaðir eru í hótelinu, Ristorante Arno, La Taverna og Ristorante Fiesole, þar sem boðið er upp ljúffenga Miðjarðarhafsrétti af matseðli. Hægt er að panta sérstaklega glútenlausa rétti. Ef hungur sækir að utan opnunartíma veitingastaðanna bjarga snarl- og drykkjarsjálfsalar málunum. Á setustofubarnum er tilvalið að tylla sér niður í lok dags með glas af ítölsku léttvíni við hönd eða ljúffengan kokteil.
Í gestamóttökunni er töskugeymsla, boðið er upp á þvotta-, þurrhreinsi- og strauþjónustu, starfsfólk aðstoðar við miðakaup og veitir almennar upplýsingar. Fundarsalir eru nokkrir og aðstaða þar öll til fyrirmyndar. 
Grand Hotel Mediterraneo er stærsta hótelið í Flórens, með 331 vistarveru. Miðbærinn með öllum sínum fallegu byggingum, söfnum og verslunum er í léttu göngufæri og stutt er í almenningssamgöngur. Fallegar hjólaleiðir eru í nágrenni hótelsins og þar er hægt að fá leigð hjól. 

Vinsamlega ath. að ferðamannaskatt þarf að greiða við komu og er hann 4,50 á mann / á nótt m.v. Grand Hotel Mediterraneo.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 109 km frá flugvellinum í Pisa
  • Miðbær: í miðborg Flórens
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Nettenging

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun