Grand Hotel Oriente
Vefsíða hótels
Grand Hotel Oriente er gott 4 stjörnu hótel í nútímalegum stíl. Hótelið er nýlega endurnýjað og staðsetningin er góð miðsvæðis í Napolí. Á hótelinu er morgunverður borinn fram af hlaðborði á fallegum veitingastað á annarri hæð. Hægt er að sitja úti. Á efstu hæð hússins er "Roof top bar" þar sem hægt er að njóta útsýnisins.
Herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð í ljósum litum. Baðkar með sturtu er í öllum herbergjum. Þau eru öll með sjónvarpi, loftkælingu, minibar, öryggishólfi og hárþurrku. Frítt þráðlaust internet er um allt hótelið og herbergisþjónusta í boði allan sólarhringinn.
Hægt er að leigja hjól í gestamóttöku. Verslanir og veitingastaðir eru allt um kring.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 20 mín
Aðstaða
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Minibar
- Hárþurrka
- Herbergi
Fæði
- Morgunverður