fbpx Harmony of the Seas | Vita

Harmony of the Seas
5 stars

Vefsíða hótels

Harmony of the Seas er í " flokknum Oasis Class“  hjá skipafélaginu Royal Caribbean Cruise Line, en honum tilheyra stærstu skemmtiferðaskip heims. Þau eru orðin þrjú í þessum flokki og er Harmony of the Seas stærst og nýjast. Skipin eru fljótandi ævintýraheimur þar sem ýmsar nýjungar sjá dagsins ljós og s.s. garðinn friðsæla Central Park um miðbik skipsins með kaffihúsum og veitingastöðum. Afturþilfarið Royal Promenade Boardwalk minnir á Tivolí með hringekju, ísbúð og ekta amerískum „Diner“. Vatnleikhúsið Aquapark er aftast á skipinu og er undravert að horfa á meistara í dýfingum sýna listir sínar undir fögrum tónum. Vel er hugsað um fjölskyldur og bæði krakkar og unglingar geta leikið sér og spreytt sig í ævintýraþrautum, klifurveggjum, öldulaugum og hverju sem hugurinn girnist. Veitingastaðir og kaffihús, þar á meðal Starbucks.

Harmony of the Seas  fór í sína jómfrúarferð 15. maí 2016. Skipið er 226.963 lestir og um 362,12 metrar á lengd og með rými fyrir allt að 6.410 farþega. Áhöfnin telur tæplega 2400 manns. Heilsulindin Vitality at Sea, Spa & Fitness Center býður uppá allt hugsanlegt dekur og að sjálfsögðu fylgir tækja- og íþróttasalur. Spilavíti, verslanir og alls 20 barir og veitingastaðir.

Klefarnir eru alltaf með tveimur rúmum sem hægt er að hafa saman eða setja náttborð á milli og hafa þannig tvö rúm. Flestir eru þeir með setkrók með sófa og skrifborði, kæliskáp (hægt að panta drykki gegn gjaldi og nota sem smábar), öryggishólfi og sjónvarpi. Hægt er að bóka skoðunarferðir, horfa á kvikmyndir og panta herbergisþjónustu í klefann í gegnum sjónvarpið. Baðherbergi er með sturtu, snyrtivörum, baðsloppum og hárþurrku. Herbergisþjónusta er opin allan sólarhringinn.

Á sundlaugarþilfarinu eru fjöldinn allur af sundlaugum og heitum pottum ásamt stóru skemmtilegu barna sundlaugar svæði. Líf og fjör er við sundlaugarnar alla daga og fram á kvöl þar sem reggie tónlistinn ræður völdum á meðan þjónarnir bjóða upp á litskrúðuga karíbahafs koktaila. 

Fjarlægðir

  • Veitingastaðir: Um borð

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Herbergi: Klefar með svölum eru á efri þilförum frá 6. - 12. og snúa út á haf og klefar án svala á 3. - 11. þilfari.

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi
  • Verönd/svalir: í ákveðnum verðflokki, sjá verð og innifalið

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun