fbpx HF Fenix Lisboa - KVAN | Vita

HF Fenix Lisboa - KVAN
4 stars

Vefsíða hótels

Velkomin(n) á skráningarsíðu VITA og KVAN þar sem að þú skráir þig í  endurmenntunarferðina þína til Lissabon.

Í ferðinni náum við að sameina endurmenntun, eflingu liðsheildar og njótum samvistar hvors annars í fallegu borginni Lissabon

Innifalið í ferðinni 
Flug til og frá Lissabon (flogið út að morgni og heim seinnipart)
Akstur til og frá flugvelli í Lissabon
Endurmenntun og námskeið hjá KVAN
Hótelgisting á Fenix Lisboa 

Verð
179.900 krónur fyrir einstakling miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi.
229.000 krónur fyrir einstakling í einstaklingsherbergi

Skráning í herbergi
Vinsamlega skráðu bara þig sem einstakling og svo raðar ferðanefndin ykkar ykkur saman í herbergi áður en farið er í ferð.

Aðrir möguleikar sem í boði verða í ferðinni
Í ferðinni verður einnig boðið uppá nokkra möguleika í skipulögðum skoðunarferðum á vegum Vita. Hægt verður að skrá sig aukalega í þær ferðir ef áhugi ef fyrir hendi.

Nánari ferðalýsing og námskeiðslýsing verður svo send á þig áður en farið verður í ferðina.

Hlökkum til að fara í gegnum þetta ferðalag með ykkur.
KVAN

 

Hotel Fenix Lixboa er fjögurra stjörnu hótel staðsett á góðum stað  í miðbæ borgarinnar, rétt við aðalgötur eins og Avenida da Liberdade og Baixa en þar má finna iðandi mannlíf, úrval verslana og veitingastaða. Metró stoppar einnig rétt frá svo auðvelt er að komast til allra átta. 

Á hótelinu eru 198 herbergi, öll eru þau fallega hönnuð og eru með sjónvarpi, síma, öryggihólfi, þráðlausu interneti, minibar og inná baðherbergjum er ýmist sturta eða baðkar, hárþurrka og helstu snyrtivörur. Inn á flestum herbergjum er afar fallegt útsýni yfir borgina. 

Á hótelinu er einnig móttaka opin allan sólarhringinn, veitingastaður, bar og setustofa. Morgunmatur er reiddur fram af hlaðborði  og hægt er panta herbergisþjónustu. 

Góður kostur fyrir þá sem kjósa góða staðsetningu í þessari frábæru borg.  

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 7,6 km
  • Miðbær: Rétt hjá

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun