HG Tenerife Sur, Los Cristianos
Vefsíða hótels
HG Tenerife Sur er vinalegt íbúðahótel á góðum stað í Los Cristianos - stutt í verslanir, veitingastaði, bari og ströndina.
Í boði eru rúmgóðar stúdíóíbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi. Í þeim öllum er gervihnattasjónvarp, sími og svalir.
Í eldhúskrók er helluborð, ofn, ísskápur, brauðrist og hraðsuðuketill. Gegn gjaldi er hægt að fá afnot af öryggishólfi og interneti á sameiginlegum svæðum.
Á hótelinu er góður sundlaugargarður og þar er sundlaug og barnalaug. HG Tenerife Sur er með leikherbergi, barnaleiksvæði og líkamsræktaraðstöðu. Einnig er hægt að panta nudd og bóka í sauna gegn gjaldi.
Auk þess er skvassvöllur á svæðinu en þar þarf að panta tíma gegn gjaldi.
Á veitingastað hótelsins er hægt að fá morgun-, hádegis- og kvöldverð. Einnig er á hótelinu bar, verslun og þvottahús.
Hálft fæði í boði - gengið er frá því á staðnum,
Athugið að mögulegt er að lenda á þriðju hæð í lyftulausu húsi. Sum húsin eru 7 hæðir en þar eru lyftur.
HG Tenerife Sur er rétt hjá Parque Santiago verslunarmiðstöðinni og Las-Américas golfvellinum. Íbúðasamstæðan er ágætlega búin og þægileg.
Fjarlægðir
- Frá flugvelli: 15 km
- Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni
- Frá strönd: Um 600 m eða 10 mín ganga á Los Cristianos strönd
Aðstaða
- Nettenging: Gegn gjaldi, í tölvuherbergi og þráðlaust net við sundlaugarbar
- Barnasundlaug
- Sundlaug
- Gestamóttaka
- Barnaleiksvæði
- Bar
- Veitingastaður
Vistarverur
- Íbúðir: Stúdíó íbúðir (mjög rúmgóðar) og íbúðir með einu svefnherbergi
- Ísskápur
- Öryggishólf
- Sjónvarp
Fæði
- Hálft fæði, Án fæðis