fbpx Hilton Am Stadtpark | Vita

Hilton Am Stadtpark
5 stars

Vefsíða hótels

Nútímalegt ráðstefnuhótel með 579 herbergi, frábærlega staðsett við Stadtpark garðinn í miðborg Vínar. Hótelið er það stærsta sinnar tegundar í Austurríki og leggur mikla áherslu á þægilegt og gott andrúmsloft. 

Stutt er á marga sögufræga staði borgarinnar og aðeins um 10 - 12 mínútna gangur í miðborgina. Stutt er í allar samgöngur frá hótelinu og neðanjarðarlestarstöð er þar rétt hjá. Hótel barinn og betri stofan, þar sem hægt er að setjast niður og slaka á eftir skemmtilegan dag, eru opin til klukkan 23:00. 

Veitingastaður hótelsins, S´parks og er byggður upp á nútíma evrópskri matargerð. Þar er morgunverðarhlaðborð alla morgna, en einnig er hægt að fá hádegismat og kvöldverð. Árshátíðarsalur hótelsins er glæsilegur með fallegum málverkum sem gleðja augað. 
Á hótelinu er mjög góð líkamsræktaraðstaða auk gufubaðs sem opin er allan sólarhringinn. 

Herbergin eru rúmgóð og falleg með útsýni yfir borgina eða garðinn.  Þau eru loftkæld, með gervihnattasjónvarpi, þráðlausu interneti (gegn gjaldi), smábar, öryggishólfi og kaffivél .

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 16 km
  • Miðbær: Í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum gegn gjaldi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun