fbpx Hilton Dubai Jumeirah | Vita

Hilton Dubai Jumeirah
5 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt fimm stjörnu fjölskylduhótel við ströndina í hjarta Jumeirah.

Á hótelinu er afar flott aðstaða en þarna eru 12 verðlaunaðir veitingastaðir, meðal annars ítalskur, asískur og grill veitingastaður ásamt öðrum. Þarna eru einnig 2 sundlaugar, sólbaðsaðstaða og fallegur garður. Hægt er að ganga frá hótelinu út á einkaströnd sem er aðeins fyrir hótelgesti. Móttaka er opin allan sólarhringinn og mikil þjónusta í boði eins og líkamsræktaraðstaða og heilsulind. Mikið er um að vera á hótelinu og mikið úrval af afþreyingu í boði, þar á meðal snorkl, sund, barnaklúbbur og leikherbergi, ásamt lifandi tónlist á kvöldin á píanóbarnum þar sem jafnvel er hægt að taka nokkur dansspor. 

Herbergin eru 359 alls og þykja einstaklega falleg, öll eru þau með stórum gluggum þar sem hægt er að njóta fagurs útsýnis, en það fer eftir staðsetningu hvort það er yfir hafið, sundlaugargarðinn eða borgina sjálfa. Þau eru öll með sjónvarpi, síma, loftkælingu, minibar, kaffi eða te aðstöðu og fullbúnum baðherbergjum þar sem er baðkar og helstu snyrtivörur. Baðsloppar eru fyrir hótelgesti, ásamt inniskóm og strandhandklæðum. Hótelið er sérstaklega vel staðsett við smábátahöfnina í Dubai, nálægt heimsklassa verslunum, veitingastöðum og skemmtun.  

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 6 dirhams á mann á nótt, á hótel Hilton Dubai Jumeirah.

 

Fjarlægðir

  • Strönd: Rétt hjá
  • Veitingastaðir: Rétt hjá

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun