Hilton Vienna Plaza
Vefsíða hótels

Glæsilegt hótel með útsýni yfir Ringstrasse, hringveginn sem umlykur gömlu miðborgina. Örstutt frá dómkirkjunni, leikhúsinu og óperunni.
Þegar það opnaði 1988 var það fyrsta hönnunarhótelið í borginni. Við endurnýjun var þess aftur gætt að þægindi og þjónusta væru í fyrirrúmi án þess að glata glæsileika sínum. Hótelið eru innblásið af gullnum tíma 1920 og art nouveau, sameinar sögulega arfleifð og þægindi og opnar þér sýn að nútíma lífsstíl borgarinnar.
Herbergin eru rúmgóð og falleg, öll búin loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, þráðlausu interneti (gegn gjaldi), smábar, öryggishólfi, örbylgjuofni, kaffivél og skrifborði. Baðherbergi eru lögð marmara og þar eru bæði baðkar og sturta.
Á La Scala er morgunverðarhlaðborð, en einnig hádegis- og kvöldverður. Á Nasch eru austurrískir réttir, með áherslu á ferskt hráefni úr næsta nágrenni og austurrískt vín til að skola máltíðinni niður. Einnig er þar bar.
Í líkamsræktinni, sem er opin allan sólarhringinn, eru m.a. sauna og nuddpottur.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 20 km
- Miðbær: Í miðbænum
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Veitingastaður
- Nettenging: Þráðlaus nettenging er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum gegn gjaldi
Vistarverur
- Hárþurrka
- Loftkæling
- Minibar
- Sjónvarp
- Öryggishólf