fbpx Hl Rondo, Enska ströndin | Vita

Hl Rondo, enska ströndin
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt fjögurra stjörnu hótel sem var allt endurnýjað sumarið 2024.  Hótelið er staðsett á ensku ströndinni á góðum stað rétt við Tirajana götuna sem svo margir þekkja.

Aðstaðan á hótelinu er til fyrirmyndar en þar má m.a. finna móttöku opna allan sólarhringinn, bar, veitingastað og setustofu.  Hægt er að velja um að vera með morgunmat innifalinn eða hálft fæði (morgunmatur og kvöldmatur). Þarna er einnig líkamsræktaraðstaða, gufubað og margt fleira.

Hótelgarðurinn er ekki stór en þar er sundlaug, nuddpottur, snarl bar og góð sólbaðsaðstaða.

Öll herbergin eru fallega innréttuð með öllum þeim helstu nútímaþægindum eins og t.d. sjónvarpi, öryggishólfi, loftkælingu og litlum kæliskáp. Inná öllum baðherbergjum er sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur.  Herbergin eru öll mjög rúmgóð og þægileg. Herbergjatýpur eru junior svítur og superior junior svítur.

Bæði Yumbo Center og Kasbah eru í um 10 mínútna göngufjarlægð.  Á hótelinu er í boði ferðir til og frá ströndinni á vissum tíma dags. Fyrir þá sem kjósa að ganga er ströndin í um 20-25 mínútna göngufjarlægð.

Góður kostur fyrir þá sem vilja dvelja á góðum stað á ensku ströndinni.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 35 km
  • Veitingastaðir: Í næsta nágrenni
  • Frá strönd: 20 mínútna göngufjarlægð

Aðstaða

  • Þráðlaust net
  • Sundlaug
  • Sundlaugabar
  • Jacuzzi
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Líkamsrækt
  • Gufubað

Vistarverur

  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sturta
  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir
  • Herbergi með aðstöðu fyrir fatlaða - þarf að sérpanta

Fæði

  • Morgunmatur, Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun