fbpx Holiday Inn Lisbon

Holiday Inn Lisbon
4,5 stars

Vefsíða hótels

Mjög gott hótel þar sem verslanir og veitingastaðir allt um kring, þakverönd með sundlaug og bar og frábæru útsýni. Auðvelt er að komast að  helstu söfnum og kennileitum með almenningssamgöngum.

Í hótelinu eru 169 rúmgóð herbergi sem rúma tvo til fjóra einstaklinga og svítur sem rúma tvo fullorðna. Innréttingar eru klassískar og stílhreinar, í millidökkum við, hvítu og bláu. Sjálfsögð þægindi eins og stillanleg loftkæling og upphitun eru í öllum vistarverum, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, smábar, öryggishólf og aðstaða til að laga te og kaffi. Nýbúið er að leggja parkett á öll herbergin. Á baðherbergjum er baðker, baðvigt, hárþurrka og ókeypis baðvörur. Þráðlaus nettenging stendur gestum til boða á herbergjum og er ókeypis í sameiginlegum rýmum. 

Á veitingastaðnum Vasco da Gama er boðið upp á ríkulegt morgunverðarhlaðborð og í hádegi og á kvöldin er áherslan á portúgalska og Miðjarðarhafsrétti úr ferskasta fáanlega hráefni. Til að slaka á eftir langan dag er upplagt að setjast niður á Almirante-barnum með svalandi fordrykk eða slakandi koníak eða kamillute. Við mælum einnig með að njóta úrvalsins af víni úr næsta nágrenni og fjölda bjórtegunda. 
Líkamsræktaraðstaða sem opin er allan sólarhringinn er í hótelinu og á þakveröndinni er lítil útisundlaug þar sem hægt er að kæla sig niður yfir daginn. Þar er einnig bar þar sem boðið er upp á snarl og rétta rétt auk ljúffengra drykkja af öllum gerðum. 

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn er þar er hraðbanki, boðið upp á gjaldeyrisskipti, töskugeymslu, þvotta-, þurrhreinsi og strauþjónustu. 
Leigubílar stoppa fyrir utan hótelið og stutt er í almenningssamgöngur. Verslanir og veitingastaðir og líka fínn veitingastaður á hótelinu.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 6 km
  • Miðbær: Í miðborginni
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun