fbpx Hotel Ibis Mariehilf | Vita

Hotel Ibis Mariehilf
3 stars

Vefsíða hótels

Þægilegt hótel á frábærum stað í Vínarborg, rétt við aðalverslunargötu borgarinnar, Mariahilfer Strasse, og Westbahnhof brautarstöðina og því tekur aðeins nokkrar mínútur að komast að helstu kennileitum borgarinnar.

Í hótelinu eru 340 hljóðeinangruð herbergi sem rúma tvo eða þrjá fullorðna, en einnig er kostur á tveimur samliggjandi herbergjum sem gengið er á milli séu fleiri á ferð. Innréttingar eru einfaldar og stílhreinar, í hlýjum litum. Parkett er á gólfum. Allar vistarverur er búnar loftkælingu og síma, sjónvarpi með fjölda gervihnattarása og ókeypis þráðlausri nettengingu. Á baðherbergjum er sturta og hárþurrka.

Morgunverðarhlaðborð er í veitingasal. Matreiðslumeistarinn Bernhard Marban hefur alþjóðlega matargerð að leiðarljósi þegar hann sér um að nóg sé af ljúffengum réttum á veitingastað hótelsins frá hádegi fram á kvöld. Ef hungrið sækir að um miðja nótt er hægt að rölta niður á hótelbarinn sem er opinn allan sólarhringinn og býður upp á samlokur og snarl auk úrvals af léttu víni og kokteilum.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Þar er minjagripaverslun, töskugeymsla og þvotta-, þurrhreinsi- og strauþjónusta, auk þess sem starfsfólk veitir almenna aðstoð og upplýsingar. 
Hótel Mariahilf er frábærlega staðsett, rétt við Mariahilfer Strasse, stærstu verslunar- og göngugötu borgarinnar, og fjöldi veitingastaða er í næsta nágrenni. Sporvagn stoppar utan við hótelið og Westbahnhof brautarstöðin er spottakorn frá. Það tekur því aðeins nokkrar mínútur að komast að Stefánskirkjunni og Schönbrunn-höll og dýragarðinum, auk annarra helstu kennileita og safna borgarinnar.

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 20 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Herbergi
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun