Hotel Puerto de la Cruz
Vefsíða hótels

Gott hótel á frábærum stað í Puerto de la Cruz. Stutt er í miðbæinn með iðandi mannlífi og sundlauga- og vatnagarðinn Martiánez.
Í hótelinu eru 300 rúmgóðar og fallegar vistarverur sem skiptast í herbergi, sem rúma allt að þrjá fullorðna eða tvo fullorðna og tvö börn, og svítur sem rúma tvo. Innréttingar eru nútímalegar og smekklegar, allar búnar helstu þægindum, eins og loftkælingu yfir sumarmánuðina, síma og flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum. Öryggishólf og smábar eru í boði gegn gjaldi. Á baðherbergjum, sem flest eru nýuppgerð, er hárþurrka og ókeypis baðvörur. Þráðlaust netsamband er gegn gjaldi á herbergjum en ókeypis í sameiginlegum rýmum. Útsýni er ýmist yfir hótelgarðinn og út á hafið eða eldfjallið Teide.
Á veitingastað hótelsins er borið fram ríkulegt morgunverðarhlaðborð. Á kvöldin eru borðin hlaðin úrvali af heitum og köldum réttum sem hægt er að fylgjast með kokkunum töfra fram af stakri snilld. Eftir langan dag undir heitri sólinni er gott að slappa af á barnum Salón Falúa með kaldan drykk við hönd og hlusta á lifandi tónlist.
Hótelgarðurinn er gróðursæll og fallegur og þar eru tvær ferskvatnssundlaugar, önnur þeirra er upphituð, auk busllaugar fyrir börnin með leiksvæði. Sólbaðsaðstaða er til fyrirmyndar með sólbekkjum og sólhlífum og ef hungur eða þorsti sækir að er stutt að sækja snarl eða drykki af öllum gerðum á sundlaugarbarinn.
Í móttökunni er bílaleiga, þvotta- og strauþjónusta og hægt er að panta nudd.
Hotel Puerto de la Cruz er fallegt hótel með gróðursælum garði á frábærum stað í Puerto de la Cruz. Hér þarf engum að leiðast, hér er hægt að spila billjarð, pílukast og tölvuleiki og tennisvöllur er við hótelið. Stutt er í veitingastaði, verslanir og iðandi mannlíf í miðbænum og sundlauga- og vatnagarðinn Martiánez. Nefna má að hótelið býður upp á ókeypis skutluþjónustu í Martiánes-verslunarmiðstöðina virka daga.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 85 km
- Miðbær: Göngufæri við miðbæinn Puerto de la Cruz
- Strönd: 10 min gangur
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Barnasundlaug
- Herbergi
- Nettenging: Gegn gjaldi á herbergjum
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Hárþurrka
- Öryggishólf: Gegn gjaldi
- Minibar: Gegn gjaldi
Fæði
- Hálft fæði
- Morgunverður