Hótel Stefan, Sölden
Vefsíða hótels
Gott fjögurra stjörnu hótel staðsett á frábærum stað í miðbæ Sölden. Skíðakláfurinn „Giggijoh“ er við hlið hótelisins og því auðvelt að komast í brekkurnar.
Á hótelinu er móttaka opin allan sólarhringinn, bar og heilsulind þar sem er sauna, heitur pottur, líkamsræktaraðstaða og í boði ýmsar snyrtimeðferðir (gegn gjaldi).
Á hótelinu er innifalinn morgunverður og í næsta nágrenni er úrval af veitingastöðum. Öll herbergin eru fallega búin og rúmgóð. Í þeim öllum er sjónvarp, sími, hárþurrka, öryggishólf og fullbúið baðherbergi með helstu snyrtivörum.
Skíðasvæðið í Sölden má skoða nánar hérna: Skíðakort
Ekki er í boði akstur til og frá flugvelli á vegum Icelandair VITAFjarlægðir
- Frá flugvelli: Innsbruck: 83 km
- Frá skíðalyftu: Rétt hjá