fbpx Iberostar Isla Canera | Vita

Iberostar Isla Canera
4 stars

Vefsíða hótels
Glæsilegt hótel í márískum stíl við hina gullfallegu Punta del Mar strönd. Sandöldur, gróður og villt dýralíf allt um kring, fullkominn staður til að slaka á.
 
Í hótelinu eru 300 rúmgóð og nýlega uppgerð herbergi sem rúma frá einum fullorðnum upp í tvo fullorðna og tvö börn. Innréttingar eru í nútímalegum spænskum stíl, í hvítum litum og flísar eru á gólfum. Loftkæling, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, smábar og þráðlaus nettenging er í öllum vistarverum. Öryggishólf og fyllt er á smábar gegn gjaldi. Á baðherbergjum er baðker með sturtu, hárþurrka og baðvörur. Við öll herbergi eru svalir eða verönd búin húsgögnum.
 
Veitingastaðurinn í hótelinu þykir mjög góður og þar svigna hlaðborðin undan andalúsískum, spænskum og alþjóðlegum réttum í hádeginu og á kvöldin. Þrír barir eru á hótelinu þar sem boðið er upp á svalandi drykki auk léttra rétta. Einn er að sjálfsögðu við sundlaugina og annar við ströndina þar sem við mælum með að slaka á með ljúfan drykk að kvöldi og njóta ómótstæðilegs útsýnisins yfir hafið.
Vinsamlega athugið, á Iberostar hótelunum er krafa um snyrtilegan klæðnað. Ekki er leyfilegt að vera í sundfötum á veitingastöðunum. Á kvöldin í matsal er mælt með að gestir séu til dæmis ekki í stuttbuxum.
 
Í sundlaugargarðinum eru stórar sundlaugar og fyrirmyndar sólbaðsaðstaða með nægum sólbekkjum og sólhlífum fyrir alla. Starfsfólk sér um afþreyingu fyrir þá sem það kjósa, börn jafnt sem fullorðna, frá morgni til kvölds. Góð heilsulind er í hótelinu með innisundlaug og líkamsræktaraðstöðu. Þar er boðið upp á alls kyns nudd- og slökunarmeðferðir sem mælt er með að panta í aðalmóttöku hótelsins. 
Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er þvotta- og þurrhreinsiþjónusta og gjafavöruverslun auk bíla- og hjólaleigu.  
Iberostar Isla Canela er á yndislegum stað í gróinni náttúru með beint aðgengi að sandöldunum á Punta del Moral ströndinni.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 74 km
  • Strönd: Við strönd
  • Veitingastaðir: Á hótelinu

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Minibar: Gegn gjaldi

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun